Úttekt á rekstri hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 1608396
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (1760). fundur
Á fund bæjarráðs koma Árni Sverrisson, ráðgjafi hjá Nolta ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í greinargerð um úttekt á rekstri Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.
Bæjarráð telur niðurstöður úttektarinnar sýna með augljósum hætti að daggjöld sem ákvörðuð eru einhliða af ríkinu nægja á engan hátt til að tryggja jafnvægi í rekstri hjúkrunarheimilisins.
Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkt um að ríkið yfirtaki starfsemi hjúkrunarheimilisins og felur bæjarstjóra jafnframt að kanna möguleika á að þriðji aðili sem hefur reynslu á þessum vettvangi yfirtaki reksturinn.