Beint í efni

Húsnæðismál Álftanesskóla - áskorun um úrbætur.

Málsnúmer 1410458

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (800). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

43. (1760). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi hönnunar viðbyggingar við Álftanesskóla en leitað hefur verið til Glámu Kím arkitekta, sem eru hönnuðir að byggingu síðasta áfanga skólans.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2017-2020.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

18. (1686). fundur

Bæjarráð samþykkir að unnið verði að framkvæmdum við gervigrasvöll á Álftanesi eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun ásamt því að vinna að viðhaldi Álftanesskóla samkvæmt áætlun ársins 2015.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að greiningu og skoðun á húsnæðismálum Álftanesskóla sem komi til nánari skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

2 (1670). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að erindisbréfi fyrir rýnihóp vegna framtíðar uppbyggingar skóla-, frístunda- og íþróttamannvirkja á skóla- og íþróttasvæði Álftaness.$line$$line$Rýnihópinn skipa: Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, Kári Jónsson, íþróttafulltrúi, Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri, Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur, NN, fulltrúi foreldraráðs Álftanesskóla, NN, fulltrúi Ungmennafélags Álftaness.

Bæjarráð Garðabæjar

05

43. fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðum á opnum fund er foreldrafélagið boðaði til miðvikudaginn 5. nóvember sl. $line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að skipaður verði rýnihóp til að fjalla um húsnæðismál skólans. Bæjarstjóra falið að koma með tillögu að erindisbréfi um skipan hópsins.