2 (1670). fundur
2 (1670). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.01.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1501072
01
Bréf Önnu M. Kristmundsdóttur ofl. varðandi reglur um tilnefningar til íþróttamanns Garðabæjar, dags. 05.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.
Málsnúmer 1302504
02
Tillaga um að auglýsa "forval" vegna útboðs á byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í lokuðu útboði um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk við Unnargrund. Um er að ræða 5-6 íbúðir sem ætlaðar eru fötluðum einstaklingum sem þurfa þjónustu til að geta búið sjálfstætt.$line$Bæjarstjóra skal falið að vinna að gerð útboðsskilmála þar sem fram komi að bjóðendur eigi val um að bjóða í byggingar og rekstur eða einungis rekstur búsetuúrræða.$line$$line$$line$Greinargerð:$line$Samkvæmt deiliskipulagi byggðar við Unnargrund er gert ráð fyrir að byggðar verði þjónustuíbúðir fyrir fimm til sex fatlaða einstaklinga. Telja verður ákjósanlegt að leita til utanaðkomandi aðila með reynslu á þessu sviði til að byggja umræddar íbúðir og annast rekstur þeirra ásamt því að veita fötlum íbúum nauðsynlega þjónustu til að þeir geti búið sjálfstætt. Til að tryggja það að öllum aðilum sem eru tilbúnir að reka þjónustu að þessu tagi gefist kostur á að bjóða í verkefnið er lagt til að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum og í framhaldi af því fari fram lokað útboð.
Málsnúmer 1501114
03
Framkvæmd rekstrarúttektar 2015
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að semja við KPMG um framkvæmd rekstrarúttektar fyrir Garðabæ.$line$$line$Við framkvæmd rekstrarúttektar skal eftirfarandi haft að leiðarljósi:$line$Stöðumat á rekstri Garðabæjar$line$Utanaðkomandi ráðgjöf$line$Samanburður við önnur sveitarfélög$line$Móta heildarsýn um framtíð Garðabæjar til skemmri og lengri tíma.$line$$line$Áætlaður kostnaður er 4,0 - 6,0 mkr.
Málsnúmer 1410458
04
Skipun rýnihóps til að fjalla um húsnæðismál Álftanesskóla.
Bæjarstjóri kynnti drög að erindisbréfi fyrir rýnihóp vegna framtíðar uppbyggingar skóla-, frístunda- og íþróttamannvirkja á skóla- og íþróttasvæði Álftaness.$line$$line$Rýnihópinn skipa: Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, Kári Jónsson, íþróttafulltrúi, Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri, Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur, NN, fulltrúi foreldraráðs Álftanesskóla, NN, fulltrúi Ungmennafélags Álftaness.
Málsnúmer 1501118
05
Bréf foreldrafélags leikskólans Litlu-Ása varðandi aðkomu og bílastæði við leikskólann, dags. 08.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Málsnúmer 1501025
06
Bréf Kvenfélags Álftaness varðandi styrk vegna ráðstefnu í tilefni af 100 ára kosningaþátttöku kvenna á Íslandi, dags. 05.01.15.
Bæjaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því u til umfjöllunar mannréttinda- og forvarnanefndar.
Málsnúmer 1501028
07
Bréf sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi umsögn um leyfi fyrir Þorrablót Stjörnunnar, ódags.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1501094
08
Bréf Kvenfélags Álftaness varðandi leyfi til að halda þorrablót félagsins og Lions í iþróttamiðstöðinni á Álftanesi, dags. 07.01.15.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra afgreiðslu þess.
Málsnúmer 1501121
09
Erindi Nemendafélags FG um afnot af Mýrinni vegna árshátíðar FG, dags. 17.12.14.
Bæjarráð getur ekki fallist á að verða við erindinu að þessu sinni vegna þeirrar röskunar sem það hefur á íþrótta- og skólastarf.