Beint í efni

Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 1302504

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1302504 sértækt búsetuúrræði fyrir fatlað fólk á Unnargrund í Garðabæ. Formaður reifar stöðu málsins og fer yfir hugmyndir um uppbygginguna.

Bæjarráð Garðabæjar

02

14. (1731). fundur

Lagt fram bréf Áss-styrktarfélags þar sem fram kemur að félagið sjái sér ekki fært að koma til samstarfs við Garðabæ um uppbyggingu á búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja undirbúning framkvæmda að uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Unnargrund.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

8. (1725). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Sinnum ehf og Ás- styrktarfélag um samstarf vegna uppbyggingar á búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að leita samninga við Ás- styrktarfélag um byggingu og rekstur búsetukjarna fyrir fatlað fólk á grundvelli áralangrar reynslu og farsæls starfs félagsins af sambærilegri starfsemi í nágrannasveitarfélögunum.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

4. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1302504 - búsetuúrræði fyrir fatlað fólk. Formaður gerir grein fyrir stöðu málsins. Verið er að vinna samningsskilmála vegna fyrirhugaðra viðræðna við aðila um samstarf um byggingu og rekstur sex íbúða fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Á fundinum kemur fram tillaga um að haft verði samráð við fatlað fólk og aðstandendur þeirra varðandi aðbúnað og aðstöðu í fyrirhuguðum íbúðakjarna. Jafnframt leggur fjölskylduráð áherslu á að unnin verði áætlun um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk til lengri tíma.

Bæjarráð Garðabæjar

05

20. (1688). fundur

Lögð fram og kynnt drög að samningsskilmálum vegna viðræðna við aðila um samstarf um byggingu og rekstur sex íbúða fyrir fatlað fólk.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við Sinnum ehf., Þroskahjálp og Ás styrktarfélag um samstarf á grundvelli fyrirliggjandi draga.

Bæjarráð Garðabæjar

06

14. (1682). fundur

Við opnun umsókna í forvali um byggingu og rekstur á búsetukjarna fyrir fatlað fólk barst aðeins ein umsókn frá Sinnum ehf.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Bæjarráð Garðabæjar

07

9. (1677). fundur

Bæjarráð samþykkir auglýsingu á forvali vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

1. fundur

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í lokuðu útboði um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk við Unnargrund. Um er að ræða 5-6 íbúðir sem ætlaðar eru fötluðum einstaklingum sem þurfa þjónustu til að geta búið sjálfstætt.$line$Bæjarstjóra skal falið að vinna að gerð útboðsskilmála þar sem fram komi að bjóðendur eigi val um að bjóða í byggingar og rekstur eða einungis rekstur búsetuúrræða.

Bæjarráð Garðabæjar

09

2 (1670). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í lokuðu útboði um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk við Unnargrund. Um er að ræða 5-6 íbúðir sem ætlaðar eru fötluðum einstaklingum sem þurfa þjónustu til að geta búið sjálfstætt.$line$Bæjarstjóra skal falið að vinna að gerð útboðsskilmála þar sem fram komi að bjóðendur eigi val um að bjóða í byggingar og rekstur eða einungis rekstur búsetuúrræða.$line$$line$$line$Greinargerð:$line$Samkvæmt deiliskipulagi byggðar við Unnargrund er gert ráð fyrir að byggðar verði þjónustuíbúðir fyrir fimm til sex fatlaða einstaklinga. Telja verður ákjósanlegt að leita til utanaðkomandi aðila með reynslu á þessu sviði til að byggja umræddar íbúðir og annast rekstur þeirra ásamt því að veita fötlum íbúum nauðsynlega þjónustu til að þeir geti búið sjálfstætt. Til að tryggja það að öllum aðilum sem eru tilbúnir að reka þjónustu að þessu tagi gefist kostur á að bjóða í verkefnið er lagt til að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum og í framhaldi af því fari fram lokað útboð.

Bæjarráð Garðabæjar

10

13. fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur fjölskylduráðs um uppbyggingu á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk við Sjávargrund og vísar málinu til bæjarstjóra.

Fjölskylduráð Garðabæjar

11

3. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1302504 um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Sólveig Steinsson, þroskaþjálfi, og Edda Tryggvadóttir, húsnæðisfulltrúi, sitja fundinn undir þessum lið. Lögð er fram og rædd samantekt vinnuhóps um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Hópurinn hefur fundað 4 sinnum frá því í byrjun janúar 2014 til að ræða mögulegar lausnir í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Fjölskylduráð og vinnuhópurinn eru sammála um að leggja eftirfarandi til við bæjarráð Garðabæjar: Að byggður verði íbúðakjarni fyrir fatlað fólk á Sjávargrund samkvæmt deiliskipulagi og að leitað verði til Áss styrktarfélags um byggingu húsnæðisins og rekstur þjónustunnar. Að skoðað verði hvort mögulegt sé að nýta hluta leiguíbúða í Arnarási, sem ætlaðar eru námsmönnum, til búsetu fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Að í yfirstandandi vinnu við aðalskipulag Garðabæjar verði hugað að frekari uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk í bæjarfélaginu. Fjölskylduráð bendir á brýna þörf fyrir skjótar úrlausnir.

Fjölskylduráð Garðabæjar

12

4. fundur

<DIV>Formaður nefndarinnar ræddi áætlun um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk. Rætt hefur verið við húsbyggingasjóð Þroskahjálpar og Brynju, hússjóð Öryrkjabandalagsins um mögulegt samstarf. Nefndin lagði áherslu á  að uppbyggingu yrði hraðað.</DIV>

Fjölskylduráð Garðabæjar

13

2. fundur

<DIV><DIV>Rædd er uppbygging búsetuúrræða í Garðabæ fyrir fatlað fólk.  Lagt fram minnisblað  félagsmálastjóra. Fjölskylduráð leggur áherslu á að áætlun um  uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Garðabæ liggi sem fyrst fyrir. Til stendur að funda með fulltrúum frá Öryrkjabandalaginu og Þroskahjálp. Nefndin verður upplýst um málið.</DIV></DIV>