1. fundur
1. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
15.01.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Dagskrá
Málsnúmer 1501010F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 13/1 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., tillögu um að auglýsa forval vegna útboðs á byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Hví þarf þetta útboð að vera lokað? Ekki eru uppi neinar þær aðstæður sem krefjast þess að útboðið sé lokað og því engin ástæða til þess. Lokuð útboð leiða alltaf til tortryggni þar sem hluta gegnsæis er fórnað."$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 3. tl., framkvæmd rekstrarúttektar 2015 og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Fólkið í bænum telur að heppilegra hefði verið að ráða til verksins aðra aðila en þá sem hafa með höndum endurskoðun bæjarfélagsins."$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 2. tl., tillögu um að auglýsa forval vegna útboðs á byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk og gerði grein fyrir þeim tilgangi auglýsingarinnar um að gefa öllum þeim sem til þess eru bærir að taka þátt í útboði. Í framhaldinu er lokað útboð með þá þekktum þátttakendum.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., bréf ÖMK varðandi reglur um tilnefningar til íþróttamanns Garðabæjar. Sigurður óskaði nýkjörnum íþróttamönnum Garðabæjar, knattspyrnumönnunum Hörpu Þorsteinsdóttur og Daníel Laxdal, til hamingju með kjörið.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., bréf kvenfélags Álftaness varðandi styrk til ráðstefnu í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna og lýsti mikilli ánægju með framtak félagsins.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl. bréf ÖMK varðandi reglur um tilnefningar til íþróttamanns Garðabæjar og tók undir hamingjuóskir til íþróttakonu og karls Garðabæjar.$line$$line$Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1412013F
02
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 16/12 ´14.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501002F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 7/1 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1410025F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 17/11 ´14.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1412010F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 15/12 ´14.
Halldór Jörgenson ræddi 1. tl., reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög og spurði hvernig eftirliti verði háttað með framkvæmd reglnanna Þá ræddi Halldór 5. tl., mönnun á leikskólanum Kirkjubóli og spurði bæjarstjóra um stöðu málsins.$line$$line$Viktoría Jensdóttir ræddi 1. tl., reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög og greindi nánar frá umræðu um málið í nefndinni. Viktoría upplýsti um að eftirlitið væri í höndum leikskólastjóra sem hluti af starfsskyldum þeirra.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 5 tl., mönnun á leikskólanum Kirkjubóli og svaraði fyrirspurn.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1412018F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 18/12 ´14.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., deiliskipulag Heiðmerkur og staðsetningu útilífsmiðstöðvar og 7. tl., breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., strandblakvöll.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1412005F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 16/12 ´14.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., útboð á þjónustu grenndargáma.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., útboð á þjónustu grenndargáma og 1. tl., virði Heiðmerkur.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., útboð á þjónustu við grenndargáma og lagði áherslu á að hvetja fólk til að skilja plast frá almennu sorpi.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi flokkun sorps. Jóna tók undir sjónarmið um að flokka plast frá almennu sorpi og sagði frá árangri sem nú þegar hefur náðst í flokkun sorps hjá íbúum Garðabæjar.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 3. tl., strönd, lækir og mengunarmælingar.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1401426
08
Fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19/12 ´14.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501125
09
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 9/1 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1406061
10
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19/12 ´14.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og upplýsti um að stjórnendur Strætó bs. muni leggja fram minnisblað til sveitarstjórna um innleiðinguna og leiðir til úrbóta til að bæta þjónustuna. Þá ræddi Gunnar Valur 5. tl., farþegatalningu 2014, 6. tl., akstursútboð Strætó 2015 og 10. tl., ráðningu framkvæmdastjóra.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 1. tl., akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og lagði til að kannað yrði viðhorf þjónustuþega í Garðabæ til þjónustunnar. Þá ræddi Guðrún Elín gjaldskrármál og fagnaði umræðu um lækkun á gjaldskrá Garðabæjar til samræmis við gjaldskrár í öðrum sveitarfélögum.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1412286
11
Gjaldskrá fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.