Fundargerð bæjarráðs frá 13/1 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. fundur
Til sérstakrar afgreiðslu:
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., tillögu um að auglýsa forval vegna útboðs á byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Hví þarf þetta útboð að vera lokað? Ekki eru uppi neinar þær aðstæður sem krefjast þess að útboðið sé lokað og því engin ástæða til þess. Lokuð útboð leiða alltaf til tortryggni þar sem hluta gegnsæis er fórnað."$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 3. tl., framkvæmd rekstrarúttektar 2015 og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Fólkið í bænum telur að heppilegra hefði verið að ráða til verksins aðra aðila en þá sem hafa með höndum endurskoðun bæjarfélagsins."$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 2. tl., tillögu um að auglýsa forval vegna útboðs á byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk og gerði grein fyrir þeim tilgangi auglýsingarinnar um að gefa öllum þeim sem til þess eru bærir að taka þátt í útboði. Í framhaldinu er lokað útboð með þá þekktum þátttakendum.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., bréf ÖMK varðandi reglur um tilnefningar til íþróttamanns Garðabæjar. Sigurður óskaði nýkjörnum íþróttamönnum Garðabæjar, knattspyrnumönnunum Hörpu Þorsteinsdóttur og Daníel Laxdal, til hamingju með kjörið.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., bréf kvenfélags Álftaness varðandi styrk til ráðstefnu í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna og lýsti mikilli ánægju með framtak félagsins.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl. bréf ÖMK varðandi reglur um tilnefningar til íþróttamanns Garðabæjar og tók undir hamingjuóskir til íþróttakonu og karls Garðabæjar.$line$$line$Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.