Beint í efni

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19/12 ´14.

Málsnúmer 1406061

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og upplýsti um að stjórnendur Strætó bs. muni leggja fram minnisblað til sveitarstjórna um innleiðinguna og leiðir til úrbóta til að bæta þjónustuna. Þá ræddi Gunnar Valur 5. tl., farþegatalningu 2014, 6. tl., akstursútboð Strætó 2015 og 10. tl., ráðningu framkvæmdastjóra.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 1. tl., akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og lagði til að kannað yrði viðhorf þjónustuþega í Garðabæ til þjónustunnar. Þá ræddi Guðrún Elín gjaldskrármál og fagnaði umræðu um lækkun á gjaldskrá Garðabæjar til samræmis við gjaldskrár í öðrum sveitarfélögum.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.