9. (1677). fundur
9. (1677). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
03.03.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar - ábendingar og athugasemdir lýsingu verkefnisins
Lagðar fram til kynningar ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar á aðalskipulagsverkefni.
02
Ársreikningur Garðabæjar 2014 - tillaga um afskriftir.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 6.215.447.
03
Auglýsing forvals vegna byggingar og reksturs búsetukjarna fyrir fatlað fólk
Bæjarráð samþykkir auglýsingu á forvali vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
04
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til þingsályktunar um seinkun klukkunnar, 338. mál, dags. 26.02.15.
Lagt fram.
05
Bréf Þorkels Helgasonar varðandi háa jaðarskatta vegna ákvæða um fasteignagjöld, dags. 22.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
06
Starfsáætlanir sviða bæjarskrifstofu árið 2015.
Lagðar fram og kynntar starfsáætlanir sviða fyrir árið 2015.
07
Bréf Sævars Þórs Jónssonar, hdl., varðandi sölutilboð húsnæðis að Goðatúni 34, dags. 06.02.15.
Í bréfinu er lagt til að Garðabær kaupi húseignina að Goðatúni 34 á kr. 47.000.000.$line$$line$Í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp 27. nóvember sl. var Garðabær sýknaður af kröfu húseiganda Goðatúns 34 um greiðslu bóta vegna skemmda á húsnæðinu sem húseigandi taldi að væru tilkomnar vegna framkvæmda á vegum Garðabæjar við götuna Silfurtún.$line$$line$Bæjarráð samþykkir með vísan til niðurstöðu dóms Hæstaréttar að leggja til við bæjarstjórn að hafna sölutilboði bréfritara.
08
Bréf sýslumanns varðandi umsögn vegna tækifærisvínveitingaleyfis í Ásgarði, dags. 24.02.15.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppsetning á skáp fyrir ljósleiðara og röralögn við Holtsveg 21, dags. 20.02.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, þar sem um óverulegt frávik frá deiliskipulagi er að ræða.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag vegna Kirkjubrúar 1, dags. 20.02.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð í landi Kirkjubrúar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Furulundi 6, dags. 20.02.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að falla frá grenndarkynningu samkvæmt 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna útgáfu á byggingarleyfi, sbr. 1. mgr. sömu greinar, enda verður ekki talið að framkvæmdin geti varðað hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
12
Umsókn um byggingarleyfi - Golfklúbbur GKG, dags. 26.02.15.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi fyrir bráðabirgðahúsi á byggingartíma félags- og íþróttaaðstöðu GKG.
13
Umsókn um byggingarleyfi - Lyngás 1, dags. 26.02.15.
Bæjarráð samþykkir að vísa umsókn um byggingarleyfi til umsagnar skipulagsnefndar vegna fjölda íbúða.
14
Umsókn um byggingarleyfi - Sunnuflöt 1, dags. 26.02.15.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á eldra húsi að Sunnuflöt 1.
15
Umsókn um byggingarleyfi - Tjaldanes 17, dags. 25.02.15.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á eldra húsi að Tjaldanesi 17.
16
Svar við fyrirspurn Maríu Grétarsdóttur, bæjarfulltrúa um rekstur grunnskóla, dags. 27.02.2015.
Lagt fram yfirlit yfir kostnað á nemenda og fjölda stöðugilda í grunnskólum í Garðabæ.
17
Tilboð vegna lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
Lögð fram tilboð er bárust í skuldabréfaútboði Garðabæjar vegna lántöku allt að kr. 400.000.000.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku allt að fjárhæð kr. 330.000.000, verðtryggt með 3,04% vöxtum. Um er að ræða viðbót við áður útgefinn skuldabréfaflokk GARD-13.1. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
18
Greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss, dags. 10.02.15.
Bæjarráð vísar greinargerð um staðsetningu fjölnota íþróttahúss til íþrótta- og tómstundaráðs og skipulagsnefndar og felur bæjarstjóra í samráði við formenn viðkomandi nefnda að boða til íbúafundar til kynningar á málinu.