Sölutilboð vegna Goðatúns 34
Málsnúmer 1502343
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. fundur
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli húseigenda Goðatúns 34 gegn Garðabæ að hafna sölutilboði hans að fjárhæð kr. 47.000.000. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
02
9. (1677). fundur
Í bréfinu er lagt til að Garðabær kaupi húseignina að Goðatúni 34 á kr. 47.000.000.$line$$line$Í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp 27. nóvember sl. var Garðabær sýknaður af kröfu húseiganda Goðatúns 34 um greiðslu bóta vegna skemmda á húsnæðinu sem húseigandi taldi að væru tilkomnar vegna framkvæmda á vegum Garðabæjar við götuna Silfurtún.$line$$line$Bæjarráð samþykkir með vísan til niðurstöðu dóms Hæstaréttar að leggja til við bæjarstjórn að hafna sölutilboði bréfritara.