Beint í efni

Lyngás 1 A-B - Umsókn um byggingarleyfi -

Málsnúmer 1502135

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til breytinga á áður útgefnu byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss að Lyngási 1 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í þessum áfanga úr 63 í 70.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (1680). fundur

Lögð fram eftirfarandi umsögn skipulagsnefndar.$line$$line$?Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina en leggur áherslu á að heildarfjöldi íbúða á lóðinni allri verði 119 sem var niðurstaða í ferli deiliskipulags Lyngáss 1 á sínum tíma.?$line$$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til breytinga á áður útgefnu byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss að Lyngási 1 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í þessum áfanga úr 63 í 70.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

3. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að fjölbýlishúsum á eystri hluta lóðarinnar Lyngás 1 en umsókninni var vísað til nefndarinnar úr bæjarráði. Sú breyting er frá áðursamþykktri teikningu af sama lóðarhluta að heildarfjöldi íbúða á lóðarhlutanum er 70 stað 63 áður.$line$$line$Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina en leggur áherslu á að heildarfjöldi íbúða á lóðinni allri verði 119 sem var niðurstaða í ferli deiliskipulags Lyngáss 1 á sínum tíma.

Bæjarráð Garðabæjar

04

9. (1677). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa umsókn um byggingarleyfi til umsagnar skipulagsnefndar vegna fjölda íbúða.