Beint í efni

12. (1680). fundur

24.03.2015
Bæjarráð Garðabæjar

12. (1680). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

24.03.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1503128

01

Bréf yfirlæknis Heilsugæslunnar í Garðabæ varðandi stöðu mála á heilsugæslunni, dags. 09.03.15.

Á fund bæjarráðs komu Bjarni Jónasson, Guðrún Hreinsdóttir, Jón Steinar Jónsson, Áslaug Gunnarsdóttir, Ásmundur Jónasson, Gerður A. Árnadóttir, starfandi læknar á Heilsugæslu Garðabæjar. Bjarni Jónasson, yfirlæknir gerði grein fyrir minnisblaði vegna alvarlegrar undirmönnunar heimilislækna í Garðabæ, dags. í mars 2015. Í minnisblaðinu er lagt til að fjölga stöðugildum heimilislækna um 1-2 við Heilsugæsluna á Garðatorgi 7 og setja á laggirnar nýja heilsugæslustöð í vesturhluta Garðabæjar þar sem starfi þrír heimilislæknar.$line$$line$Ræddar voru leiðir til úrbóta og tekur bæjarráð undir að nauðsynlegt er að bregðast markvisst við til að bæta úr mönnun á Heilsugæslu Garðabæjar og tryggja Garðbæingum þá læknisþjónustu sem skylt er veita samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og reglugerð um heilsugæslustöðvar.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita bréf til heilbrigðisráðherra og þingmanna Suðvesturkjördæmisins til að vekja athygli á ástandinu og krefjast úrbóta.

Málsnúmer 1503308

02

Bréf hestamannafélagsins Sóta varðandi endurbætur á keppnisvelli félagsins, dags. 18.02.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs og til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði. Jafnframt er erindinu vísað fjárhagsáætlunar 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1307327

03

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi framlög vegna endurskipulagningar þjónustu og stjórnsýslu í sameinuðu sveitarfélagi, dags. 17.03.15.

Málsnúmer 1503243

04

Tillaga að gjaldskrá fyrir skólagarða og matjurtagarða 2015, dags. 16.03.15.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu garðyrkjustjóra um gjaldskrá fyrir skólagarða og matjurtargarða sumarið 2015.$line$$line$Skólagarðar kr. 3.500$line$Matjurtargarðar kr. 3.500

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1410242

05

Bréf hestamannafélagsins Spretts varðandi rekstrarstyrk og fasteignagjöld vegna ársins 2015, dags. 10.03.15.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 1.805.590 vegna greiðslu fasteignagjalda af fasteigninni við Hattarvelli 1 og styrk að fjárhæð kr. 14.110 vegna greiðslu hluta fasteignagjalda af fasteigninni við Hattarvelli 2.$line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu á rekstrarstyrk til gerðar sérstaks samnings samkvæmt fjárhagsáætlun.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503246

06

Bréf Norræna félagsins í Garðabæ varðandi styrk vegna ársins 2015, dags. 11.03.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2015, sbr. dagskrárliður 21.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503274

07

Bréf Saman-hópsins varðandi fjárstuðning, dags. 15.03.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu mannréttinda- og forvarnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1410196

08

Bréf félagsmálastjóra varðandi samstarfssamningur við Specialisterne á Íslandi, dags. 16.03.15.

Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs að í stað samstarfssamnings með föstu framlagi verði gerður samningur við félagið í tenglum við þá einstaklinga úr Garðabæ sem þar dvelja hverju sinni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503270

09

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um að draga úr plastpokanotkun, dags. 17.03.15.

Lagt fram.

Málsnúmer 1503250

10

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um hagkvæmni lestarsamgangna, dags. 16.03.15.

Lagt fram.

Málsnúmer 1501393

11

Söluskilmálar byggingarréttar norðurhluti II í Urriðaholti.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við söluskilmála sem gilda munu um sölu lóða í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1501422

12

Bréf félagsmálastjóra varðandi þjónustukort fyrir eldri borgara, dags. 16.03.15.

Í bréfinu er umsögn fjölskylduráðs um tillögu Fólksins í bænum um þjónustukort fyrir eldri borgara.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs um að vísa tillögunni til skoðunar við endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum eldri borgara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503130

13

Bréf kennslustjóra á fata og textílhönnunarbraut FG varðandi styrk vegna tískusýningar nemenda, dags. 02.02.15.

Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita fata- og textílhönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 100.000 til að standa straum að sýningu nemenda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502135

14

Umsókn um byggingarleyfi - Lyngás 1

Lögð fram eftirfarandi umsögn skipulagsnefndar.$line$$line$?Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina en leggur áherslu á að heildarfjöldi íbúða á lóðinni allri verði 119 sem var niðurstaða í ferli deiliskipulags Lyngáss 1 á sínum tíma.?$line$$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til breytinga á áður útgefnu byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss að Lyngási 1 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í þessum áfanga úr 63 í 70.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502269

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar sem nemur íbúðarhúsalóðinni við Ránargrund 3 og breytingu á aðkomu við Löngulínu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502266

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna veitingastaðar við Ránargrund, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna stækkunar á lóð og húsnæði fyrir veitingastað við Arnarnnesvog.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502265

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna Unnargrundar 2-10, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2-10 sem sameinaðar verða í eina lóð.

Málsnúmer 1411153

19

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 41 - 43, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 -43 vegna fjölgunar á íbúðum úr 9 í 10 á hvorri lóð.

Málsnúmer 1401171

20

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna áhaldahúss Kópavogsbæjar, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að mæla gegn breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna hugmynda bæjaryfirvalda í Kópavogi um byggingu áhaldahúss á miðsvæði hesthúsabyggðarinnar við Kjóavelli.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1409324

21

Afgreiðsla styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.$line$$line$Styrktarfélag klúbbsins Geysis kr. 100.000$line$Félag eldri borgara í Garðabæ kr. 400.000$line$Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000$line$Garðakórinn kr. 300.000$line$Álftaneskórinn kr. 100.000$line$Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000$line$Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000$line$Stígamót kr. 150.000$line$Norrænafélagið í Garðabæ kr. 100.000$line$$line$Bæjarráð vísar erindi Garðasóknar vegna sálgæslu og erindi félags heyrnarlausra um styrk til bæjarstjóra.$line$$line$Bæjarráð vísar erindi Skógræktarfélags íslands til afgreiðslu umhverfisnefndar.$line$$line$Bæjarráð telur eigi unnt að vera við erindi Parkinsonsamtakanna um styrk.