Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, vegna skólalóðar Sjálandsskóla, dags. 13.08.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1699). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir stækkun skólalóðar Sjálandsskóla og bættri aðkoma frá Löngulínu. Athugasemd barst við tillöguna frá stjórn húsfélagsins við Löngulínu 2 og leggur skipulagsnefnd til að tekið verði tillit til hennar með ákvæði um girðingu eða gróðurbelti á lóðarmörkum frá Löngulínu að Hraunsholtslæk. Athugasemd verður svarað.
Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla að lokinni kynningu sem stóð frá 15.maí til 26.júní. Tillagan gerir ráð fyrir því að skólalóð stækki og að aðkoma frá Löngulínu breytist. Athugasemdabréf hefur borist frá stjórn Húseigendafélagsins að Löngulínu 2. Athugsemd er gerð við fækkun bílastæða við aðkomu að Löngulínu og óskað eftir því að girðing og gróðurbelti verði á lóðarmörkum. Skipulagsnefnd bendir á að markmið breytingarinnar er að auðvelda flæði bifreiða við inngang skólans með snúningsaðkomu. Bílastæði fyrir Sjálandsskóla eru austan við bygginguna með aðkomu frá Vífilsstaðavegi og er því aðeins um skammtímastæði að ræða við aðkomu frá Löngulínu.
Skipulagsnefnd leggur til að gert sé ráð fyrir því í deiliskipulagi að girðing og/eða gróðurbelti verði inn á skólalóðinni meðfram lóðarmörkum frá Lönguhlínu að Hraunsholtslæk. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með framangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar sem nemur íbúðarhúsalóðinni við Ránargrund 3 og breytingu á aðkomu við Löngulínu.
Bæjarráð Garðabæjar
04
12. (1680). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar sem nemur íbúðarhúsalóðinni við Ránargrund 3 og breytingu á aðkomu við Löngulínu.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóð stækki sem nemur íbúðarhúslóðinni að Ránargrund 3. Eftir stækkun verður lóðin 20.609 m2 en er nú 18.644 m2. Við Löngulínu gerir tilllagan ráð fyrir bílaaðkomu með einstefnu og fimm skammtímabílastæðum og að auki tveimur bílastæðum fyrir hreyfihamlaða.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Þar sem að tillagan er í samræmi við meginforsendur aðalskipulags er fallið frá forkynningu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla. Gert er ráð fyrir snúningshaus framan við inngang við Löngulínu og að lóðin Ránagrund 3 sameinist skólalóð Sjálandsskóla. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.