2. fundur
2. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.02.2015
Kl. 14:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1501317
01
Almenningssamgöngur, skólaverkefni.
Jóhanna Helgadóttir arktekt og MSc í Skipulagsfræði og samgöngum kynnti niðurstöður úr lokaritgerð sinni við tækni-og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Jóhanna fór í stuttu máli yfir hugmyndafræði samgöngumiðaðs skipulags, hvort það sé raunhæfur valkostur fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og greindi frá tillögum um samgöngumiðuð þróunarsvæði í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði sem eru vel tengd almenningssamgönguás um Hafnarfjarðarveg.
Málsnúmer 1302243
02
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar aðalskipualgsverkefnisins. Ábendingum vísað til úrvinnslu skipulagsráðgjafa. Ábendingum er ekki svarað formlega á þessu stigi aðalskipulagsferlis.
Málsnúmer 1501534
03
Forgangsakstur
Lagt fram erindi frá Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins dags 27.janúar 2015. Í erindingu lýsir hann áhyggjum sínum af þrengingum gatna sem geta haft áhrif á viðbragðsflýti slökkviliðsins. Vísað til aðalskipulagsgerðar.
Málsnúmer 1502265
04
Unnargrund 2-10, br á dsk Ása og Grunda.
Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Unnargrund 2-10. Gert er ráð fyrir fjölgun íbúða til að laga skipulagið að áformum um að byggja sérhannaðar íbúðir fyrir hreyfihamlaða á lóðinni.$line$Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1502266
05
Ránargrund 2 og 4, veitingastaður, br á dsk Ása og Grunda
Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær lóðanna Ránargrund 2 og 4 þar sem gert er ráð fyrir veitingastað og aðstöðu fyrir siglingaklúbb. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar og byggingarreits fyrir veitingastað og aðkomu að honum frá hringtorgi á mótum Vífilsstaðavegar og Unnargrundar. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1502269
06
Sjálandsskóli,(Langalína 8) br á dsk Ása og Grunda. Skólalóð.
Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla. Gert er ráð fyrir snúningshaus framan við inngang við Löngulínu og að lóðin Ránagrund 3 sameinist skólalóð Sjálandsskóla. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1302203
07
Kirkjubrú 1, dsk
Lögð fram tillaga landeiganda að íbúðarhúsabyggð í landi Kirkjubrúar eitt sunnan við Tjarnarbrekku. Aðalskipulag gerir ráð fyrir íbúðarhúsabyggð á svæðinu.$line$Eigandi lands austan og vestan við svæðið hefur ekki fallist á að ráðstafa landi sínu til íbúðarhúsabyggðar að svo stöddu.$line$Í forkynningu hefur komið í ljós andstaða íbúa við Tjarnarbrekku og Kirkjubrekku við byggð á svæðinu og hafa þeir lýst áhyggjum sínum af aukinni umferð um sameiginlegan aðkomuveg frá Suðurnesvegi. Allir íbúar hafa nú lagt fram ósk um að svæðið verði skilgreint sem opið óbyggt svæði í endurskoðuðu aðalskipulagi sem nú er í vinnslu.$line$Kynntir möguleikar á því að gera sérstakan aðkomuveg austan við byggðina frá Suðurnesvegi. $line$Skipulagsnefnd leggur áherslu á að útfærsla tillögunnar verði með þeim hætt að auðvelt verði að tengja hina nýju byggð til austurs þegar miðbæjarsvæðið verður byggt upp.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 41.greinar Skipulagslaga. Badlur Ó Svavarsson sat hjá við afgreiðslu tillögunnar.
Málsnúmer 1412278
08
Umsókn um byggingarleyfi Furulundi 6
Skipulagsnefnd samþykkir að falla frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr 44.gr.skipulagslaga þar sem að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Málsnúmer 1501562
09
Uppsetning á skáp fyrir ljósleiðara og röralögn við Holtsveg 21
Skipulagsnefnd heimilar að byggingarfulltrúi samþykki tillöguna sem frávik frá deiliskipulagi í samræmi við 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1501288
10
Íbúakönnun 2014
Lagt fram.