Unnargrund 2-10, br á dsk Ása og Grunda.
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
7. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1502265 - íbúðakjarni fyrir fatlað fólk. Formaður gerir grein fyrir stöðu fyrirhugaðs íbúðakjarna fyrir fatlað fólk á Grundum í Garðabæ. Á fundi sínum 6.10. sl. samþykkti bæjarráð með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, sem gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna nr. 2 - 10 við Unnargrund í eina lóð Unnargrund 2 við sömu götu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Málið rætt.
Bæjarráð Garðabæjar
02
38. (1706). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, sem gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna nr. 2 ? 10 við Unnargrund í eina lóð nr. 2 við sömu götu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Unnargrund 2-10 að lokinni kynningu. Lóðirnar Unnargrund 2-10 verða sameinaðar í eina lóð Unnargrund 2 og lóðarmörk breytast þannig að bílastæði framan við húsin verða innan lóðar. Á lóðinni verði heimilt að byggja hús með 6-7 íbúðum í stað 5 ætluðum hreyfihömluðum ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk
Tillagan var í kynningu frá 15. maí til 26. júní 2015.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
6. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2-10 sem sameinaðar verða í eina lóð.
Bæjarráð Garðabæjar
05
12. (1680). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2-10 sem sameinaðar verða í eina lóð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til lóðanna Unnargrund 2-10. Lóðirnar verða sameinaðar í eina lóð Unnargrund 2 og lóðarmörk breytast þannig að bílastæði framan við húsin verða innan lóðar. Á lóðinni verður heimilt að byggja hús með 6-7 íbúðum ætluðum hreyfihömluðum ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.$line$Þar sem að tillagan er í samræmi við meginforsendur aðalskipulags er fallið frá forkynningu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Unnargrund 2-10. Gert er ráð fyrir fjölgun íbúða til að laga skipulagið að áformum um að byggja sérhannaðar íbúðir fyrir hreyfihamlaða á lóðinni.$line$Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.