Beint í efni

7. fundur

08.10.2015
Fjölskylduráð Garðabæjar

7. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.10.2015

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1410277

01

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1410277. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1507041

02

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1507041. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1502384

03

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1502384. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1502383

04

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1502383. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1502382

05

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1502382. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1508118

06

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1508118 - málskot vegna synjunar á umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1508223

07

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1508223 - málskot vegna synjunar á umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1504144

08

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur

Tekið er fyrir mál nr. 1504144 - beiðni um undanþágu frá reglum í tengslum við umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1401750

09

ESTER matstæki

Tekið er fyrir mál nr. 1401750 - Ester matstæki. Kynnt er Ester skimunar- og matstæki sem Barnaverndarstofa hefur fengið styrk frá Evrópu unga fólksins til að innleiða í barnaverndarmálum. Um er að ræða tilraunaverkefni frá 1. febrúar 2015 - 31. janúar 2017. Garðabær er ekki þátttakandi í tilraunaverkefninu en mun fylgjast með framvindu þess.

Málsnúmer 1509327

10

Skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum

Tekið er fyrir mál nr. 1509327 - skýrsla innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum. Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar m.a. í fjölskylduráði. Skýrslan er lögð fram og rædd.

Málsnúmer 1510025

11

Ósk um samstarf vegna forvarnarverkefnis

Tekið er fyrir mál nr. 1510025 - Ósk barnaverndarstofu dags. 28. sept. 2015 um samstarf vegna forvarnarverkefnis. Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum starfaði tímabilið 2012-2014 á vegum innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmálaráðuneytis og stóð m.a. fyrir sýningum á leikritinu "Krakkarnir í hverfinu" þar sem brúður eru notaðar til að fræða börn um ofbeldi. Rannsóknarstofu í barna- og æskulýðsfræðum var falið að meta árangur verkefnisins og var niðurstaðan sú að brúðuleikhúsið hefði reynst hvetjandi fyrir börn til að greina frá ofbeldi og auðveldað starfsfólki í skólum að bregðast rétt við. Velferðarráðuneytið hefur nú ákveðið að bjóða skólum áfram sýningar á leikritinu og hefur falið Barnaverndarstofu umsjón með verkefninu. Stofan leitar nú eftir samstarfi við barnaverndarnefndir sveitarfélaga um framkvæmdina. Fjölskylduráð Garðabæjar lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið og starfsfólk nefndarinnar mun verða í samstarfi við Barnaverndarstofu.

Málsnúmer 1509074

12

Móttaka flóttafólks

Tekið er fyrir mál nr. 1509074 - móttaka flóttafólks. Á fundi bæjarráðs 8.9. sl. var tekið fyrir erindi frá Velferðarráðuneytinu varðandi móttöku flóttamanna. Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við ráðuneytið og umræðu um málið innan stjórnar SSH. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu, en vísaði því jafnframt til umfjöllunar í fjölskylduráði og mannréttinda- og forvarnanefnd. Málið rætt.

Málsnúmer 1306038

13

Samningur um Sprotasjóðsverkefnið: Kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ

Tekið er fyrir mál nr. 1306038 - Velferð barna í Garðabæ. Lögð er fram og kynnt samantekt sem unnin var sameiginlega af Garðabæ og Menntaklifi um verklag stofnana, félagasamtaka og dagforeldra vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna. Bæjarráð vísaði samantektinni til kynningar innan bæjarkerfisins og fól fjölskyldu- og fræðslu- og menningarsviði að fylgja eftir umfjöllun og frekari kynningu málsins.

Málsnúmer 1502265

14

Unnargrund 2-10, br á dsk Ása og Grunda.

Tekið er fyrir mál nr. 1502265 - íbúðakjarni fyrir fatlað fólk. Formaður gerir grein fyrir stöðu fyrirhugaðs íbúðakjarna fyrir fatlað fólk á Grundum í Garðabæ. Á fundi sínum 6.10. sl. samþykkti bæjarráð með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, sem gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna nr. 2 - 10 við Unnargrund í eina lóð Unnargrund 2 við sömu götu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Málið rætt.