Beint í efni

Ósk um samstarf vegna forvarnarverkefnis

Málsnúmer 1510025

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

7. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1510025 - Ósk barnaverndarstofu dags. 28. sept. 2015 um samstarf vegna forvarnarverkefnis. Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum starfaði tímabilið 2012-2014 á vegum innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmálaráðuneytis og stóð m.a. fyrir sýningum á leikritinu "Krakkarnir í hverfinu" þar sem brúður eru notaðar til að fræða börn um ofbeldi. Rannsóknarstofu í barna- og æskulýðsfræðum var falið að meta árangur verkefnisins og var niðurstaðan sú að brúðuleikhúsið hefði reynst hvetjandi fyrir börn til að greina frá ofbeldi og auðveldað starfsfólki í skólum að bregðast rétt við. Velferðarráðuneytið hefur nú ákveðið að bjóða skólum áfram sýningar á leikritinu og hefur falið Barnaverndarstofu umsjón með verkefninu. Stofan leitar nú eftir samstarfi við barnaverndarnefndir sveitarfélaga um framkvæmdina. Fjölskylduráð Garðabæjar lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið og starfsfólk nefndarinnar mun verða í samstarfi við Barnaverndarstofu.