Beint í efni

6. fundur

16.04.2015
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.04.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1503027F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 24/3"15

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., bréf yfirlæknis Heilsugæslunnar í Garðabæ varðandi stöðu mála á heilsugæslunni og gerði grein fyrir bréfi sem sent hefur verið til heilbrigðisráðherra.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., bréf yfirlæknis Heilsugæslunnar í Garðabæ varðandi stöðu mála á heilsugæslunni.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., bréf yfirlæknis Heilsugæslunnar í Garðabæ varðandi stöðu mála á heilsugæslunni og 21. tl., afgreiðslu styrkja. Guðrún Elín óskaði eftir upplýsingum bæjarstjóra varðandi styrkbeiðni Garðasóknar vegna sálgæslu sem vísað var til bæjarstjóra.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.$line$$line$Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

1.14 - 1502135 - Umsókn um byggingarleyfi - Lyngás 1

Lögð fram eftirfarandi umsögn skipulagsnefndar.$line$$line$?Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina en leggur áherslu á að heildarfjöldi íbúða á lóðinni allri verði 119 sem var niðurstaða í ferli deiliskipulags Lyngáss 1 á sínum tíma.?$line$$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til breytinga á áður útgefnu byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss að Lyngási 1 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í þessum áfanga úr 63 í 70.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til breytinga á áður útgefnu byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss að Lyngási 1 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í þessum áfanga úr 63 í 70.

Fylgiskjöl

1.15 - 1502269 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar sem nemur íbúðarhúsalóðinni við Ránargrund 3 og breytingu á aðkomu við Löngulínu.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna skólalóðar Sjálandsskóla. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar sem nemur íbúðarhúsalóðinni við Ránargrund 3 og breytingu á aðkomu við Löngulínu.

Fylgiskjöl

1.16 - 1502266 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna veitingastaðar við Ránargrund, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna stækkunar á lóð og húsnæði fyrir veitingastað við Arnarnnesvog.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna stækkunar á lóð og húsnæði fyrir veitingastað við Arnarnesvog.

Fylgiskjöl

1.17 - 1502265 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna Unnargrundar 2-10, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2-10 sem sameinaðar verða í eina lóð.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2-10 sem sameinaðar verða í eina lóð.

1.19 - 1411153 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 41 - 43, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 -43 vegna fjölgunar á íbúðum úr 9 í 10 á hvorri lóð.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 -43 vegna fjölgunar á íbúðum úr 9 í 10 á hvorri lóð.

1.20 - 1401171 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna áhaldahúss Kópavogsbæjar, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að mæla gegn breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna hugmynda bæjaryfirvalda í Kópavogi um byggingu áhaldahúss á miðsvæði hesthúsabyggðarinnar við Kjóavelli.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að mæla gegn breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna hugmynda bæjaryfirvalda í Kópavogi um byggingu áhaldahúss á miðsvæði hesthúsabyggðarinnar við Kjóavelli.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503051F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 31/3"15

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., ársreikning Garðabæjar 2014 og gerði að umtalsefni tekjuáætlun bæjarins.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., ársreikning Garðabæjar 2014 og 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum og 10. tl., deiliskipulag Kirkjubrúar.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl. bréf Alþjóðaskólans á Íslandi varðandi heimild fyrir 8. bekk, 5. tl., tillögu Bjartrar framtíðar um þarfa- og kostnaðargreiningu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss, 6. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla og 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., ársreikning Garðabæjar árið 2014, 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum og 10. tl., deiliskipulag Kirkjubrúar$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 6. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla og 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2014.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum og lagði fram eftirfarandi bókun sem hann flytur ásamt bæjarfulltrúum Bjartrar Framtíðar og Fólksins í bænum.$line$$line$,,Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, Fólksins í bænum og Bjartrar framtíðar harma þá ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar að fella tillögu þess efnis að skipa áheyrnarfulltrúa í þær fastanefndir sem ekki eru skipaðar fulltrúum allra flokka. Sveitarstjórnarlögin setja ákvörðun um skipan áheyrnarfulltrúa í nefndum, sem ekki fara með fullnaðarákvörðun, í hendur sveitarstjórna. Með þessari ákvörðun meirihlutans er Garðabær eitt örfárra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, líklega annað tveggja sveitarfélaga sem ekki heimilar skipan áheyrnarfulltrúa í nefndir. Allt tal meirihlutans um að í stað áheyrnarfulltrúa komi til opnir íbúafundir er fyrirsláttur og kemur á engan hátt í stað fundarsetu í nefndum."$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., ársreikning Garðbæjar 2014 og 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla og 9. tl., tillögu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla.$line$$line$Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

2.10 - 1503396 - Bréf skipulagsstjóra varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Kirkjubrúar og Brekku (Kirkjubrekka/Tjarnarbrekka), dags. 27.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um að auglýsa tillögu breytingu á deiliskipulagi Kirkjubrúa vegna Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku og deiliskipulagi Brekku samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni felst breyting á gatnamótum Brekkulands og Tjarnarbrekku, breyting á stíg frá Tjarnarbrekku og að stígur frá Tjarnarbrekku til suðurs verði felldur út. Þá gerir tillagan ráð fyrir að lóðin við Tjarnarbrekku 15 skerðist lítillega.$line$Tillagan tengist tillögu að nýju deiliskipulagi Kirkjubrúar 1 sem samþykkt var að auglýsa til kynningar á fundi bæjarstjórnar 5. mars 2015.

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsstjóra um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kirkjubrúa vegna Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku og deiliskipulagi Brekku samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni felst breyting á gatnamótum Brekkulands og Tjarnarbrekku, breyting á stíg frá Tjarnarbrekku og að stígur frá Tjarnarbrekku til suðurs verði felldur út. Þá gerir tillagan ráð fyrir að lóðin við Tjarnarbrekku 15 skerðist lítillega.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir og Halldór Jörgensson sitja hjá við afgreiðslu málsins.$line$

Fylgiskjöl

2.9 - 1503390 - Tillaga bæjarfulltrúa Fólksins í bænum og Samfylkingar um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Tillaga um að tilnefna áheyrnarfulltrúa í skólanefnd, leikskólanefnd, skipulagsnefnd, fjölskylduráð og ÍTG er felld með sjö atkvæðum (SÞ,ÁHJ,SHJ,SG,JS,GVG,GE) gegn fjórum (SE,MG,GEH,HJJ).

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504004F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 14/4"15.

Halldór Jörgensson, ræddi 5. tl., umsóknir í forvali um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., umsóknir í forvali um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk og 2. tl., bréf Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Arnarnesvegar. Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir 60 mkr. viðbótarfjárveitingu til viðhalds gatna. Fjármögnun verði mætt með lækkun á handbæru fé."$line$$line$Greinargerð:$line$Síðustu ár hefur Efla verkfræðistofa farið yfir ástand slitlags gatna á hverjum vetri og gert ástandsmat á götum Garðabæjar. Út frá þessu ástandsmati hafa verið teknar ákvarðanir um endurnýjun slitlags. Á vorin hefur síðan verið farið í að lagfæra þær skemmdir og holur sem hafa verið á slitlögum gatna í bænum. $line$Ástand yfirborðs gatna í Garðabæ hefur versnað mikið í vetur og er nú töluvert meira af götum sem þarfnast endurnýjunar og viðgerðar en gert var ráð fyrir á síðastliðnu ári. Fjárveiting ársins 2015 dugar til endurnýjunar á slitlagi á um 13 þúsund fermetrum í ár. Æskilegt er að framkvæma nánast annað eins til viðbótar. Með ofangreindri tillögu er komið til móts við þá þörf. $line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi framkomna tillögu og lýsti yfir stuðningi bæjarfulltrúa Bjartrar framtíðar við tillöguna.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., forval um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk og spurði í því sambandi um rekstur sambýla til framtíðar. Þá ræddi Steinþór framkomna tillögu og lýsti yfir stuðningi við hana.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., bréf Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Arnarnesvegar og framkomna tillögu. Sigurður vék af þessu tilefni að legu ofanbyggðavegar.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna tillögu og 5. tl., forval um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk, 4. tl., ársreikning Félags eldri borgara á Álftanesi, 7. tl., erindi TVS um sumarlaun vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleika í efnafræði.$line$$line$Gunnar Einarsson ræddi 5. tl., forval um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk og svaraði fyrirspurn um starfsemi sambýla.$line$$line$Tillaga um viðbótarfjárveitingu til viðhalds gatna samþykkt samhljóða.$line$$line$Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.

3.10 - 1503066 - Umsókn um byggingarleyfi - Suðurhraun 2

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að samþykkja að breytingaruppdrátt fyrir milligólf í iðnaðarhúsnæðinu við Suðurhraun 2.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að samþykkja breytingaruppdrátt fyrir milligólf í iðnaðarhúsnæðinu við Suðurhraun 2.

Fylgiskjöl

3.9 - 1408506 - Umsókn um byggingarleyfi - Keldugata 11

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að samþykkja reyndarteikningar fyrir einbýlishúsið við Keldugötu 11.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að samþykkja reyndarteikningar fyrir einbýlishúsið við Keldugötu 11.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504001F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 13/4"15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503049F

05

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara frá 30/3"15.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., stefnu í málefnum eldri borgara og lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$,,Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða stefnu í málefnum eldri borgara. Nefnd um málefni eldri borgara er falið að semja drög að nýrri stefnu í samvinnu við Fjölskylduráð Garðabæjar. Fyrstu drög skulu lögð fyrir á fyrsta fundi bæjarstjórnar Garðabæjar eftir sumarleyfi 2015."$line$$line$Greinargerð$line$Núverandi stefna í málefnum eldri borgara var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 24. janúar 2002. Margt hefur áunnist í þessum efnum á síðustu þrettán árum og má þar helst nefna tilkomu Jónshúss sem efldi allt félags-og tómstundastarf.$line$Samkvæmt tölum Hagstofunnar 1. janúar 2002 voru Garðbæingar 8050. Þar af voru 735 67ára og eldri eða 9%. $line$1.janúar 2015 eru Garðbæingar 14453 samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þar af eru 1827 67 ára og eldri eða 12.6%$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa til að bæjarráðs að útfæra nánar framkvæmd tillögunnar.$line$$line$Tillagan um að endurskoða stefnu um málefni eldri borgara samþykkt og einnig samþykkt að vísa nánari útfærslu á tillögunni til bæjarráðs.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$

Málsnúmer 1503048F

06

Fundargerð mannréttinda- og forvarnarnefndar frá 8/4"15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., hundrað ára afmæli kosningarréttar kvenna 19. júní 2015.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., forvarnastefnu og fjallaði í því sambandi almennt um slysagildrur. Guðrún Elín bent á að brýnt væri að fylla upp í grunn á miðsvæði Álftaness þar sem mikil hætta getur skapast þegar hann fyllist af vatni.$line$$line$Sigurður Guðmundsson og Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddu sama mál.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi sama mál og vakti athygli á slysagildrum við læki bæjarins.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál og vakti athygli á slysagildrum við aðkomu að læk við brú vestan við Sjálandsskóla.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$

Málsnúmer 1503047F

07

Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 26/3"15.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður samræmdra prófa.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi sama mál.$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$

Málsnúmer 1503045F

08

Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 26/3"15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi skólastarf í tónlistarskóla og vakti athygli á tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík sem er haldin í sal tónlistarskólans. Gunnar Valur ræddi einnig fyrirhugaða djass hátíð í Garðabæ og kynnti helstu atriði sem verða á dagskrá.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$

Málsnúmer 1503043F

09

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar frá 25/3"15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501328

10

Fundargerð Reykjanesfólkvangs frá 11/3´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501297

11

Fundargerðir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20/2 og 20/3´15.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1501125

12

Fundargerðir Sorpu frá 23/3 og 10/4"15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., fg. 23/3 niðurstöðu kærunefndar útboðsmála, 5. tl. fg. 10/4 sölu á metani og 6. tl., lóðarréttindi vegna endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl. fg. 10/4 sölu á metani, 5. tl. fg. 10/4 sala á metani og 6. tl., lóðarréttindi vegna endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.$line$

Málsnúmer 1502027

13

Fundargerðir Strætó bs. frá 27/3"15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., akstursútboð, 2. tl. útboð vegna olíuinnkaupa hjá Strætó bs.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$

Málsnúmer 1412332

14

Ársreikningur Garðabæjar 2014 (fyrri umræða)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2014. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. $line$$line$Á fundinum er lögð fram greinargerð bæjarstjóra og skýrsla endurskoðenda.$line$$line$Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.$line$$line$Til máls tóku.$line$María Grétarsdóttir, Halldór Jörgensson, Gunnar Valur Gíslason. $line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2014 til síðari umræðu í bæjarstjórn.$line$$line$Fleira ekki gert.$line$Undirritun á næstu síðu.$line$