Fundargerð bæjarráðs frá 14/4"15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. fundur
Halldór Jörgensson, ræddi 5. tl., umsóknir í forvali um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., umsóknir í forvali um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk og 2. tl., bréf Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Arnarnesvegar. Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir 60 mkr. viðbótarfjárveitingu til viðhalds gatna. Fjármögnun verði mætt með lækkun á handbæru fé."$line$$line$Greinargerð:$line$Síðustu ár hefur Efla verkfræðistofa farið yfir ástand slitlags gatna á hverjum vetri og gert ástandsmat á götum Garðabæjar. Út frá þessu ástandsmati hafa verið teknar ákvarðanir um endurnýjun slitlags. Á vorin hefur síðan verið farið í að lagfæra þær skemmdir og holur sem hafa verið á slitlögum gatna í bænum. $line$Ástand yfirborðs gatna í Garðabæ hefur versnað mikið í vetur og er nú töluvert meira af götum sem þarfnast endurnýjunar og viðgerðar en gert var ráð fyrir á síðastliðnu ári. Fjárveiting ársins 2015 dugar til endurnýjunar á slitlagi á um 13 þúsund fermetrum í ár. Æskilegt er að framkvæma nánast annað eins til viðbótar. Með ofangreindri tillögu er komið til móts við þá þörf. $line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi framkomna tillögu og lýsti yfir stuðningi bæjarfulltrúa Bjartrar framtíðar við tillöguna.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., forval um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk og spurði í því sambandi um rekstur sambýla til framtíðar. Þá ræddi Steinþór framkomna tillögu og lýsti yfir stuðningi við hana.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., bréf Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Arnarnesvegar og framkomna tillögu. Sigurður vék af þessu tilefni að legu ofanbyggðavegar.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna tillögu og 5. tl., forval um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk, 4. tl., ársreikning Félags eldri borgara á Álftanesi, 7. tl., erindi TVS um sumarlaun vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleika í efnafræði.$line$$line$Gunnar Einarsson ræddi 5. tl., forval um byggingu og rekstur íbúða fyrir fatlað fólk og svaraði fyrirspurn um starfsemi sambýla.$line$$line$Tillaga um viðbótarfjárveitingu til viðhalds gatna samþykkt samhljóða.$line$$line$Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.