Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara frá 30/3"15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. fundur
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., stefnu í málefnum eldri borgara og lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$,,Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða stefnu í málefnum eldri borgara. Nefnd um málefni eldri borgara er falið að semja drög að nýrri stefnu í samvinnu við Fjölskylduráð Garðabæjar. Fyrstu drög skulu lögð fyrir á fyrsta fundi bæjarstjórnar Garðabæjar eftir sumarleyfi 2015."$line$$line$Greinargerð$line$Núverandi stefna í málefnum eldri borgara var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 24. janúar 2002. Margt hefur áunnist í þessum efnum á síðustu þrettán árum og má þar helst nefna tilkomu Jónshúss sem efldi allt félags-og tómstundastarf.$line$Samkvæmt tölum Hagstofunnar 1. janúar 2002 voru Garðbæingar 8050. Þar af voru 735 67ára og eldri eða 9%. $line$1.janúar 2015 eru Garðbæingar 14453 samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þar af eru 1827 67 ára og eldri eða 12.6%$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa til að bæjarráðs að útfæra nánar framkvæmd tillögunnar.$line$$line$Tillagan um að endurskoða stefnu um málefni eldri borgara samþykkt og einnig samþykkt að vísa nánari útfærslu á tillögunni til bæjarráðs.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$