Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2014 (síðari umræða).

Málsnúmer 1412332

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu ársreiknings Garðabæjar og helstu skýringum og lykiltölum reikningsins.$line$$line$Steinþór Einarsson, tók til máls og ræddi ársreikning.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls að nýju.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og fagnaði jákvæðri niðurstöðu reikningsins. Áslaug Hulda, færði starfsfólki þakkir fyrir þeirra þátt í að tryggja trausta fjárhagsstöðu og góða afkomu í rekstri bæjarins á árinu 2014.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi ársreikning og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Fólkið í bænum samþykkir ársreikning Garðabæjar með fyrirvara um tvö atriði.$line$$line$1. Annars vegar er um að ræða 22. lið skýringa við ársreikning Garðabæjar en þar kemur fram að$line$"Aðal- og varamenn í bæjarstjórn auk æðstu stjórnenda sveitarfélagsins eru skilgreindir sem tengdir aðilar sveitarfélagsins. Makar þessara aðila og ófjárráða börn og aðrir fjárhagslega háðir einstaklingar falli einnig undir skilgreininguna ásamt fyrirtækjum í eigu eða undir stjórn þessara aðila. Á árinu náðu viðskipti sveitarfélagsins við tengda aðila eingöngu til hefðbundinnar þjónustu sem sveitarfélagið veitir og opinberra gjalda sem lögð eru á tengda aðila. Viðskiptin eru á sömu forsendum og þegar um ótengda aðila er að ræða og eru skilyrði og skilmálar viðskiptanna sambærileg og við ótengda aðila. Við ákvörðun um viðskipti við tengda aðila er farið að hæfisreglum 20. gr. sveitarstjórnarlaga".$line$Fólkið í bænum óskaði eftir að fá upplýsingar um heildaryfirlit viðskipta við tengda aðila sem framgreind skýring væri byggð á en það reyndist ekki vera til. Fólkið í bænum óskaði eftir að útbúið yrði heildaryfirlit yfir viðskipti Garðabæjar við fyrirtæki í eigu eða undir stjórn tengdra aðila á árinu 2014. Það liggur nú fyrir og nema viðskiptin frá 82 þúsund til 520 milljóna króna. Athyglisvert er að einungis er tilgreint framlag til eins stjórnmálaafls á árinu.$line$$line$Tveir einkaskólar á grunnskólastigi (1.-7. bekkur) eru í Garðabæ, Barnaskóli Hjallastefnunnar að Vífilsstöðum og Alþjóðaskólinn. Hjallastefnan fær samkvæmt samningnum greitt sem nemur 100% framlagi samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands samkvæmt 43. gr. grunnskólalaga en þó ekki hærra framlag en meðaltal heildarrekstrarkostnaðar grunnskóla Garðabæjar. Alþjóðaskólinn fær greitt 75% framlag með nemanda samkvæmt grunnskólalögum. Ekki er því hægt að segja að viðskipti Garðabæjar við þessa tvo einkaskóla sé á sömu forsendum.$line$$line$2. Hjallastefnan fór fram á endurskoðun á ákvæði samnings við Garðabæ um framlag með nemendum þegar fyrirséð var að greiða ætti minna með hverju barni á árinu 2014 en á árinu 2013. Erindið var tekið fyrir í bæjarráði 22/11 2014 og samþykkti bæjarráð að fram færi endurskoðun á ákvæðum samningsins sem skyldi lokið innan þriggja mánaða og að þar til niðurstöður aðila um endurskoðun samningsins lægju fyrir skyldi ekki koma til lækkunar á framlagi til Barnaskóla Hjallastefnunnar. Niðurstaða um framlög með nemendum í skóla Hjallastefnunnar á árinu 2014 liggur ekki fyrir þrátt fyrir að liðnir séu rúmir 5 mánuðir frá beiðni skólans um endurskoðun. Ekki er getið um þennan fyrirvara í ársreikningi Garðabæjar.$line$Fólkið í bænum hefur mælt fyrir því að framlög til skóla í Garðabæ væru samræmd þannig að bæjar- og einkaskólar fengju sama kennsluframlagi úthlutað. Breytingin fælist í að fjarlægja húsnæðiskostnað frá framlögum sem fylgja barni. Þannig væru skólar með háan húsnæðiskostnað ekki að fá minna framlag í kennslukostnað og fjarlægðar yrðu sveiflur sem nýting húsnæðis bæjarskólanna hefur á framlög einkaskólanna."$line$$line$Frekari umræða var ekki um ársreikning Garðabæjar árið 2014.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2014 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.$line$$line$Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (1685). fundur

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

15 (1683). fundur

Lagðar fram eftirfarandi skýrslur endurskoðenda til bæjarstjóra.$line$$line$Skýrsla vegna skoðunar á innri eftirliti og fjárhagskerfi árið 2014$line$Skýrsla vegna skoðunar á upplýsingakerfum árið 2014$line$Stjórnsýsluendurskoðun árið 2014

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

6. fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2014. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. $line$$line$Á fundinum er lögð fram greinargerð bæjarstjóra og skýrsla endurskoðenda.$line$$line$Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.$line$$line$Til máls tóku.$line$María Grétarsdóttir, Halldór Jörgensson, Gunnar Valur Gíslason. $line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2014 til síðari umræðu í bæjarstjórn.$line$$line$Fleira ekki gert.$line$Undirritun á næstu síðu.$line$

Bæjarráð Garðabæjar

05

14. (1682). fundur

Lagður fram listi yfir viðskipti við tengda aðila.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

06

13. (1681). fundur

Auðunn Guðjónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mættu á fund bæjarráðs.$line$$line$Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2014, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.$line$$line$Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2014 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. $line$$line$Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. apríl 2015.

Bæjarráð Garðabæjar

07

9. (1677). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 6.215.447.