17. (1685). fundur
17. (1685). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.05.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1502222
01
Minnisblað mannauðsstjóra um sumarstörf 2015
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ráðningum í sumarstörf ungmenna og sagði frá tillögum um fjölda þeirra sem ráðnir verða til félaga og stofnana bæjarins.$line$$line$Á biðlista eru nú 145 ungmenni en biðlista var lokað 1. maí sl.$line$$line$Bæjarstjóra falið að vinna áfram að nánari útfærslu á fyrirkomulagi og skipulagi sumarvinnu ungmenna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1504283
02
Bréf Landskerfa bókasafna hf. um aðalfund 2015, dags. 27.04.15.
Málsnúmer 1504312
03
Kjör á aðal- og varamanni í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands
Bæjarráð vísar kjöri á aðal- og varamanni í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands til bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1412332
04
Bréf innanríkisráðuneytisins um skil á ársreikningi 2014, dags. 22.04.15.
Málsnúmer 1504225
05
Umsókn um byggingarleyfi Kauptún 4
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna stækkunar veitingastaðar og starfsmannaaðstöðu ásamt breytingum á skrifstofurými í verslunarhúsnæðinu við Kauptún 4.
Málsnúmer 1411098
06
Umsagnir nefnda um tillögu Bjartrar framtíðar um að settar verði reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög.
Bæjarráð samþykkir að reglur sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt varðandi samskipti við trúar- og lífsskoðunarfélög verði hafðar til viðmiðunar hjá leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505001
07
Laun í vinnuskóla sumarið 2015
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um laun í vinnuskóla sumarið 2015.$line$$line$Unglingar fæddir 1999 var kr. 550/klst. - verður kr. 580/ klst.$line$Unglingar fæddir 2000 var kr. 419/klst. - verður kr. 449/ klst.$line$Unglingar fæddir 2001 var kr. 373/klst. - verður kr. 403/ klst.$line$
Málsnúmer 1504288
08
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um lögræðislög (réttindi fatlaðs fólks, svipting lögræðis ofl.) 687. mál, dags. 29.04.15.
Lagt fram.
Málsnúmer 1505002
09
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (réttarstaða leigjanda og leigusala), 696. mál, dags. 30.04.15.
Lagt fram.
Málsnúmer 1504314
10
Opnun tilboða í malbik, viðgerðir og yfirlagnir
Eftirfarandi tilboð bárust samkvæmt útboði í ofangreint verkefni.$line$$line$Fagverk verktakar kr. 67.410.000$line$Loftorka kr. 52.468.000$line$Hlaðbær Colas kr. 54.978.500$line$Malbikunarstöðin Höfði kr. 57.158.700$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 58.630.000$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Loftorku og felur bæjarverkfræðingi að leita samninga á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.$line$