Sumarstörf 2015, staða mála.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
20. (1688). fundur
Á fund bæjarráðs kom Vilhjálmur K. Haraldsson, mannauðsstjóri, og gerði nánari grein fyrir minnisblað varðandi umsóknir um sumarstörf.$line$$line$Í umsóknarfresti sóttu alls 225 ungmenni um sumarstörf hjá Garðabæ og hefur þeim öllum verið boðin vinna hjá Garðabæ.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að bjóða yngstu aldurhópunum á biðlista vinnu við umhverfisverkefni og felur bæjarstjóra nánari útfærslu málsins.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (1685). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ráðningum í sumarstörf ungmenna og sagði frá tillögum um fjölda þeirra sem ráðnir verða til félaga og stofnana bæjarins.$line$$line$Á biðlista eru nú 145 ungmenni en biðlista var lokað 1. maí sl.$line$$line$Bæjarstjóra falið að vinna áfram að nánari útfærslu á fyrirkomulagi og skipulagi sumarvinnu ungmenna.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
16 (1684). fundur
Lagt fram minnisblað mannauðsstjóra varðandi fjölda umsækjenda um sumarstörf. Í minnisblaðinu kemur fram að 505 umsóknir bárust en í mörgum tilvikum er verið að sækja um fleiri störf en eitt. Umsóknarfrestur rann út 23. mars sl. og eru nú 134 umsækjendur á biðlista.$line$$line$Bæjarstjóra falið að vinna að nánari útfærslu á fyrirkomulagi og skipulagi sumarvinnu ungmenna.
Bæjarráð Garðabæjar
04
7 (1675). fundur
Bæjarstjóri gerð grein fyrir undirbúningi vegna sumarstarfa ungmenna sumarið 2015.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.