7 (1675). fundur
7 (1675). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.02.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta varðandi fasteignagjöld 2015 vegna Jötunheima, dags. 09.02.15.
Bæjarráð samþykkir að veita skátafélögunum styrk að fjárhæð kr. 2.644.458 til greiðslu fasteignagjalda árið 2015.
02
Bréf GKG varðandi fasteignagjöld 2015, dags. 12.02.15.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 719.365 til greiðslu fasteignagjalda árið 2015.
03
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, dags. 10.02.15.
Lagt fram ásamt svarbréfi formanns sérstakrar stjórnar yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks, dags. 14. febrúar 2015.
04
Forvarnastefna Garðabæjar 2014-2018.
Bæjarráð samþykkir að vísa forvarnastefnu Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
05
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks, 454. mál, dags. 09.02.15.
Lagt fram.
06
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga 416. mál, dags. 09.02.15.
Lagt fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði.
07
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, 512. mál, dags. 10.02.15.
Lagt fram.
08
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um náttúrupassa, 455. mál, dags. 06.02.15.
Lagt fram.
09
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, 427. mál, dags. 09.02.15.
Lagt fram.
10
Svör við fyrirspurnum Guðrúnar Örnu Kristjánsdóttur varabæjarfulltrúa um stöðu innflytjenda í Garðabæ, dags. 05.02.15.
Lögð fram.
12
Bréf Bókasafns Garðabæjar varðandi aðstoð við grunnskólabörn við lestur og heimanám.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnti samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar og Rauða krossins í Garðabæ um að veita grunnskólanemendum úr 3. - 7. bekk aðstoð við lestur og heimanám með það að markmiði að efla lesskilning.$line$$line$Bæjarráð lýsir yfir ánægju með verkefnið og vísar því til kynningar skólanefndar.
13
Minnisblað umhverfisstjóra og mannauðsstjóra varðandi sumarstörf 2015, ódags.
Bæjarstjóri gerð grein fyrir undirbúningi vegna sumarstarfa ungmenna sumarið 2015.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.
14
Umsókn um byggingarleyfi - Golfklúbbur GKG, dags. 12.02.15
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa vegna niðurrifs eldri golfskála og framkvæmda við félags- og íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
15
Bréf sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir veitingahús að Lyngási 17, dags. 10.02.15.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsókn um rekstrarleyfi fyrir veitingahús að Lyngási 17.
16
Bréf mannauðsstjóra varðandi umsókn Shirin E. Naimy um styrk til að stunda nám, ódags.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að verða við umsókn um styrk sem nemur 10% afslætti af vikulegri vinnuskyldu umsækjanda vegna framhaldsnáms á háskólastigi.
18
Bréf Námsmatsstofnunar varðandi skýrslu um ytra mat á Barnaskóla Hjallastefnunnar haustið 2014, dags. 11.02.15.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu niðurstöðum skýrslunnar og í framhaldi mun skólinn bregðast við athugasemdum og ábendingum.