7. fundur
7. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
07.05.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1504019F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/4 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., árskýrslu bókasafnsins og vék að opnum fundi um menningarmál þar sem fram komu m.a. upplýsingar um breytta starfsemi bókasafna.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 10. tl., samantekt fræðslu- og menningasviðs á niðurstöðum samræmdra prófa.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 14. tl., ársreikning Garðabæjar og fjallaði sérstaklega um stjórnsýsluendurskoðun þar sem athugasemd er gerð við gildi samninga við einkaðila um þjónustuverkefni.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 14. tl., ársreikning Garðabæjar og svaraði fyrirspurn.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 14. tl., ársreikning Garðabæjar og óskaði upplýsinga um hvenær vænta megi niðurstöðu úttektar KPMG á rekstri og afkomu bæjarins.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju og svaraði fyrirspurn.$line$$line$Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1504024F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/4 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Steinþór Einarsson, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi vegna Búðarflatar 2-4.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og sagði frá viðræðum við eiganda lóðarinnar um möguleika á nýtingu hennar.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 20. tl., fyrirspurn um stjórnarkjör til aðalstjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Lánasjóður sveitarfélaga starfar samkvæmt hlutafélagalögum og sem lánafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Í 15. grein samþykkta fyrir Lánasjóð sveitarfélaga kemur fram að stjórn félagsins skuli skipuð fimm mönnum kjörnum til eins árs í senn á aðal- eða hluthafafundi. Kosning stjórnar skuli jafnan vera skrifleg, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal. Um hæfi stjórnarmanna fari að lögum. Ekki er minnst á kjörnefnd í samþykktum sjóðsins en stjórn lánasjóðsins kýs kjörnefnd og er hlutverk hennar að auglýsa eftir framboðum og setja tímafresti, fara yfir framboð sem berast til stjórnar, stilla upp tillögu að stjórn og varastjórn fyrir aðal- eða hluthafafund og ákveða með hvaða hætti varamenn koma inn í forföllum aðalmanna.$line$Þegar kjörnefnd tilkynnti tillögur sínar til aðalfulltrúa í stjórn á aðalfundi lánasjóðsins 17. apríl s.l. þá kom fram í máli formanns kjörnefndar, Erlings Ásgeirssonar að taka þyrfti tillit til búsetu og flokkslína við val á aðalmönnum. Ekki er hægt að sjá að sú afstaða formanns eigi sér stoð í lögum né heldur það vinnulag kjörnefndar að hringja í frambjóðendur og falast eftir að þeir dragi framboð sín til baka í þeim tilfellum sem aðalmenn vilji halda áfram stjórnarsetu. Í lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 segir hins vegar að fjármálaeftirlitið setji reglur um fjárhagslegt sjálfstæði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra og um hvernig staðið skuli að hæfismati. $line$Á fundi bæjarráðs Garðabæjar þar sem til umfjöllunar var með hvaða hætti bæjarstjóri sem fulltrúi Garðabæjar hafi greitt atkvæði við kjör á aðalmönnum til stjórnar félagsins kom fram hjá Gunnari Einarssyni bæjarstjóra að hann teldi að kjörnefnd hafi valið hæfasta fólkið til starfa, þrátt fyrir að í orðum formanns kjörnefndar hafi komið fram að taka hafi þurft tillit til búsetu og flokkslína. Bæjarstjóri spurði einnig hvað væri eiginlega svona flókið við að skilja þetta. $line$Við sem viljum að farið sé eftir lögum og reglum, viljum gera rétt og þola eigi órétt finnst verulega flókið að skilja með hvaða hætti bæjarstjóri og kjörnefnd lánasjóðs sveitarfélaga kemst að þeirri niðurstöðu að hafna reynslumestu frambjóðendum á fjármálamarkaði við kjör til aðalstjórnar sjóðsins. Aðilum með framhaldsháskólamenntun á sviði viðskipta og allt að 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Athugasemdum varðandi hvernig staðið er að vali á aðalmönnum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga verður því komið á framfæri við Fjármálaeftirlitið þar sem búseta og flokkslínur virðast teknar fram yfir hæfniskröfur umsækjenda."$line$$line$Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1504034F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 5/5 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., minnisblað mannauðsstjóra um sumarstörf 2015 og lagði áherslu á að hafa í boði vinnu fyrir yngsta aldurshópinn.$line$$line$Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1504026F
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 30/4 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun. Steinþór spurði um hvort fyrir lægi áfangaskýrsla í málinu.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.$line$$line$Björg Fenger, ræddi 7. tl., stefnu í málefnum aldraðra og hvatti til samstarf við íþrótta- og tómstundaráð um málið til að koma að stefnumótun varðandi leiðir til að efla hreyfingu meðal eldri borgara í bænum.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503011F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 16/3 ´15.
Viktoría Jensdóttir ræddi 2. tl., úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla og lýsti með samstöðu í nefndinni við ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum. Þá ræddi Viktoría 7. tl. tillögu leikskólanefndar um gjaldskrá leikskóla þar sem lagt er til að hægt verði að greiða fyrir hverjar 15 mínútur úr klukkustund.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1504009F
06
Fundargerð leikskólanefndar frá 20/4 ´15.
Viktoría Jensdóttir, ræddi 3., tl., stöðu biðlista og fagnaði að öll börn sem verða eins árs í september fá leikskólavist í í upphafi nýs skólaárs.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi málefni leikskóla og sagði frá afhendingu á viðurkenningu til tveggja starfsmanna leikskóla fyrir 25 ára starf í þágu Garðabæjar. $line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503023F
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 19/3 ´15.
María Grétarsdóttir, ræddi 3. tl., breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna skólalóðar Sjálandsskóla.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1504014F
08
Fundargerð skipulagsnefndar frá 18/4 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1504021F
09
Fundargerð skipulagsnefndar frá 22/4 ´15.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 11. tl., íbúðir fyrir ungt fólk.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., íbúðir fyrir ungt fólk.$line$$line$Steinþór Einarsson, 1. tl., byggingu fjölnota íþróttahúss og 11. tl., íbúðir fyrir ungt fólk.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. tl., íbúðir fyrir ungt fólk.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., byggingu fjölnota íþróttahúss og 11. tl., íbúðir fyrir ungt fólk.$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., fjölnota íþróttahúss og 11. tl., íbúðir fyrir ungt fólk.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1.tl., fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju um 1. tl., fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús og spurði nánar um fjármögnun framkvæmda við byggingu hússins.$line$$line$Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju um 1. tl. og svaraði fyrirspurn.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503008F
10
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 24/3 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1504016F
11
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 21/4 ´15.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., aðgerðir til að efla læsi í grunnskólum Garðabæjar.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál og vakti athygli á átaki bókasafnsins hvað þetta varðar. Þá ræddi Jóna 1. tl., aðgengi að skólum, öryggi og merkingar í grennd við skóla.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1504201
12
Fundargerðir ungmennaráðs veturinn 2014-2015.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 1502086
13
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/3 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503138
14
Fundargerð stjórnar SSH frá 13/4 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501346
15
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða, frá 8/4 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1502027
16
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 14/4 og 17/4 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., akstursútboð og gerði grein fyrir vinnu við undirbúning málsins.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi málefni Strætó bs. og spurði um hver þróun í kostnaði við rekstur strætó væri á fyrstu mánuðum ársins.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju og svaraði fyrirspurn.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og svaraði fyrispurn.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1502027
17
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 13/4 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., akstursútboð og gerði grein fyrir að málið hafi verið afgreitt á næsta fundi þar á eftir.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503137
18
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 27/3, 10/4 og 17/4 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi afgreiðslu á tillögu að nýju svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið og fagnaði því að nefndin hafi lokið málinu og sent það til meðferðar viðkomandi sveitarstjórna. $line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og þakkaði fulltrúum Garðabæjar í svæðisskipulagsnefndinni fyrir þeirra þátt við meðferð og afgreiðslu málsins.$line$$line$Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 1504202
19
Breytingar á erindisbréfi fyrir ungmennaráð.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga ungmennaráðs að breytingu á erindisbréfi sem gerir ráð fyrir breytingu á aldursmörkum og viðbótarákvæði um opna fundi.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögur ungmennaráðs um breytingar á erindisbréfi.
Málsnúmer 1501092
20
Gjaldskrá leikskóla Garðabæjar.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að breytingu á gjaldskrá leikskóla sem gerir ráð fyrir að hægt verði að greiða fyrir hverjar 15 mínútur umfram klst.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir leikskóla sem tekur gildi 1. ágúst 2015.
Málsnúmer 1410146
21
Skólagjöld Tónlistaskóla Garðabæjar skólaárið 2015-2016.
Kristinn Guðlaugsson, gerði grein fyrir tillögu skólanefndar um nýja gjaldskrá sem taka á gildi við upphaf næsta skólaárs. Fram kom í máli Kristins að gert er ráð fyrir að skólagjöld hækki um 3,4% skólaárið 2015 - 2016.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýrri gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2015 - 2016.
Málsnúmer 1306040
22
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um nýtt svæðisskipulag.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins að nýju svæðisskipulagi eins og tillagan ásamt umhverfisskýrslu var endanlega afgreidd á fundi nefndarinnar sem haldinn var 10. apríl 2015. Afgreiðsla bæjarstjórnar á samþykkt tillögunar er gerð á grundvelli 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Málsnúmer 1504312
23
Kosning á aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð EBÍ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði tillögu um Sigríði Huldu Jónsdóttur, sem aðalmann og Gunnar Einarsson, sem varamann í fulltrúaráð EBÍ.$line$$line$Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs og gerði athugasemd við að í fundarboði var ekki getið um hvaða aðilar væru tilnefndir.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls og kvað það hafa verið mistök og að framvegis verði þess gætt að greina í fundarboði hverjir væru tilnefndir við kjör í nefndir og ráð.$line$$line$Tillaga bæjarstjóra samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1310283
24
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar Strikið 1-3.
Fyrir er tekin tillaga skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1. Í tillögunni er gert ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits lóðarinnar við Strikið 1 og fækkun íbúða úr 56 í 42 en óbreytta stærð á heildaríbúðarými vegna stækkunar íbúða.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1412332
25
Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2014 (síðari umræða).
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu ársreiknings Garðabæjar og helstu skýringum og lykiltölum reikningsins.$line$$line$Steinþór Einarsson, tók til máls og ræddi ársreikning.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls að nýju.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og fagnaði jákvæðri niðurstöðu reikningsins. Áslaug Hulda, færði starfsfólki þakkir fyrir þeirra þátt í að tryggja trausta fjárhagsstöðu og góða afkomu í rekstri bæjarins á árinu 2014.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi ársreikning og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Fólkið í bænum samþykkir ársreikning Garðabæjar með fyrirvara um tvö atriði.$line$$line$1. Annars vegar er um að ræða 22. lið skýringa við ársreikning Garðabæjar en þar kemur fram að$line$"Aðal- og varamenn í bæjarstjórn auk æðstu stjórnenda sveitarfélagsins eru skilgreindir sem tengdir aðilar sveitarfélagsins. Makar þessara aðila og ófjárráða börn og aðrir fjárhagslega háðir einstaklingar falli einnig undir skilgreininguna ásamt fyrirtækjum í eigu eða undir stjórn þessara aðila. Á árinu náðu viðskipti sveitarfélagsins við tengda aðila eingöngu til hefðbundinnar þjónustu sem sveitarfélagið veitir og opinberra gjalda sem lögð eru á tengda aðila. Viðskiptin eru á sömu forsendum og þegar um ótengda aðila er að ræða og eru skilyrði og skilmálar viðskiptanna sambærileg og við ótengda aðila. Við ákvörðun um viðskipti við tengda aðila er farið að hæfisreglum 20. gr. sveitarstjórnarlaga".$line$Fólkið í bænum óskaði eftir að fá upplýsingar um heildaryfirlit viðskipta við tengda aðila sem framgreind skýring væri byggð á en það reyndist ekki vera til. Fólkið í bænum óskaði eftir að útbúið yrði heildaryfirlit yfir viðskipti Garðabæjar við fyrirtæki í eigu eða undir stjórn tengdra aðila á árinu 2014. Það liggur nú fyrir og nema viðskiptin frá 82 þúsund til 520 milljóna króna. Athyglisvert er að einungis er tilgreint framlag til eins stjórnmálaafls á árinu.$line$$line$Tveir einkaskólar á grunnskólastigi (1.-7. bekkur) eru í Garðabæ, Barnaskóli Hjallastefnunnar að Vífilsstöðum og Alþjóðaskólinn. Hjallastefnan fær samkvæmt samningnum greitt sem nemur 100% framlagi samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands samkvæmt 43. gr. grunnskólalaga en þó ekki hærra framlag en meðaltal heildarrekstrarkostnaðar grunnskóla Garðabæjar. Alþjóðaskólinn fær greitt 75% framlag með nemanda samkvæmt grunnskólalögum. Ekki er því hægt að segja að viðskipti Garðabæjar við þessa tvo einkaskóla sé á sömu forsendum.$line$$line$2. Hjallastefnan fór fram á endurskoðun á ákvæði samnings við Garðabæ um framlag með nemendum þegar fyrirséð var að greiða ætti minna með hverju barni á árinu 2014 en á árinu 2013. Erindið var tekið fyrir í bæjarráði 22/11 2014 og samþykkti bæjarráð að fram færi endurskoðun á ákvæðum samningsins sem skyldi lokið innan þriggja mánaða og að þar til niðurstöður aðila um endurskoðun samningsins lægju fyrir skyldi ekki koma til lækkunar á framlagi til Barnaskóla Hjallastefnunnar. Niðurstaða um framlög með nemendum í skóla Hjallastefnunnar á árinu 2014 liggur ekki fyrir þrátt fyrir að liðnir séu rúmir 5 mánuðir frá beiðni skólans um endurskoðun. Ekki er getið um þennan fyrirvara í ársreikningi Garðabæjar.$line$Fólkið í bænum hefur mælt fyrir því að framlög til skóla í Garðabæ væru samræmd þannig að bæjar- og einkaskólar fengju sama kennsluframlagi úthlutað. Breytingin fælist í að fjarlægja húsnæðiskostnað frá framlögum sem fylgja barni. Þannig væru skólar með háan húsnæðiskostnað ekki að fá minna framlag í kennslukostnað og fjarlægðar yrðu sveiflur sem nýting húsnæðis bæjarskólanna hefur á framlög einkaskólanna."$line$$line$Frekari umræða var ekki um ársreikning Garðabæjar árið 2014.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2014 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.$line$$line$Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.