Kynningar og önnur mál 2015
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
13. fundur
Kynning leikskólastjóra Sunnuhvols
1)Guðrún Brynjólfsdóttir staðgengill leikskólastjóra gerði grein fyrir starfsemi Sunnuhvols og sýndi nefndarmönnum húsnæði hans. Breytingar hafa verið gerðar á húsnæði og starfsemi leikskólans til að koma til móts við þarfir yngstu barnanna. Nefndarmenn lýstu ánægju sinni yfir starfi Sunnuhvols.
2) Formaður þakkaði Önnu Magneu leikskólafulltrúa fyrir vel unnin störf í þágu Garðabæjar og óskaði henni velfarnaðar í nýju starfi. Einnig bauð formaður Halldóru Pétursdóttir verkefnastjóra á skóladeild velkomna til starfa.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Kynning leikskólastjóra
a) Fyrirspurn kom frá nefndarmanni um hvernig aðlögun barna í leikskóladeild Flataskóla væri háttað og hvort hún væri ekki í samræmi við aðlögun barna í aðra leikskóla. Deildarstjóra skóladeildar falið að kanna málið.
Einnig urðu umræður um þau börn sem eru að byrja í grunnskóla og hvort ekki væri hægt að bjóða þeim aðlögun að grunnskólanum í tómstundaheimilunum áður en grunnskólinn hefst eða frá byrjun ágúst. Þá gæti aðlögun yngri barna hafist fyrr á haustin í leikskólunum.
b) Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir staðgengill leikskólastjóra kynnti starf leikskólans Sjálands og sýndi nefndarmönnum húsnæðið. Sjáland er fjölmennasti leikskóli í Garðabæ en þar dvelja um 150 börn um um 50 starfsmenn. Elstu börnin hafa aðstöðu í Sjálandsskóla. Hverju barni er mætt þar sem það er statt og áhersla lögð á fjölbreytni og einstaklingsmiðað nám út frá fjölgreindarkenningu Howard Gardners.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Leikskólastjóri Lundabóls kynnir starfsemi skólans
1) Lovísa Anna Pálmadóttir fulltrúi foreldra sagði frá fundi sem hún átti með formönnum foreldraráða og foreldrafélaga leikskóla í Garðabæ. Góð mæting var á fundinn og ríkti almenn ánægja meðal fulltrúa með starfsemi leikskóla í Garðabæ. Nokkuð var rætt um viðhald og framkvæmdir við leikskólana. Hyggst hópurinn hitta bæjarstjóra að sumarleyfum loknum.$line$2) Kristjana F. Sigursteinsdóttir hefur óskað eftir árs leyfi frá nefndarstörfum vegna dvalar sinnar erlendis. $line$3) Björg Helga Geirsdóttir leikskólastjóri Lundabóls kynnti nefndarmönnum starfsemi leikskólans og sýndi þeim húsnæðið. Nokkur umræða varð um stækkun Lundabóls og viðhald húsnæðisins.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
7. fundur
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að breytingu á gjaldskrá leikskóla sem gerir ráð fyrir að hægt verði að greiða fyrir hverjar 15 mínútur umfram klst.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir leikskóla sem tekur gildi 1. ágúst 2015.
Bæjarráð Garðabæjar
05
16 (1684). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögur leikskólanefndar um breytingar á gjaldskrá leikskóla og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Kynning á starfsemi Krakkakots
1) Rætt um stöðuna á biðlista, en öll börn sem verða eins árs í september fá pláss á leikskóla í haust.$line$2) Hjördís G. Ólafsdóttir leikskólastjóri náttúruleikskólans Krakkakot kynnti nefndarmönnum starfsemi leikskólans og sýndi þeim húsnæði og lóð
Bæjarráð Garðabæjar
07
14. (1682). fundur
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að útfæra breytingu á gjaldskrá leikskóla til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fylgiskjöl
Leikskólanefnd Garðabæjar
08
8. fundur
a) Rætt um í hverju munur á dvalarkostnaði v. barns hjá dagforeldrum á ungbarnaleikskóla liggur. Leikskólafulltrúa falið að taka saman kostnað fyrir næsta fund.$line$b) Rætt um hvort ekki sé sama þjónusta fyrir börn með málþroskavanda í öllum leikskólum í Garðabæ, þar með talið leikskóladeild Flataskóla. Leikskólafulltrúi telur svo vera.$line$c) Rætt um að nokkrir leikskólar í Garðabæ selja 15 mínútna dvalartíma, en á gjaldskrá leikskóla er einungis að finna hálftíma gjald. Vilja nefndarmenn skoða hvort hægt sé að samræma gjaldskrá allra leikskóla í Garðabæ.$line$d) Rætt um greiðslur í foreldrasjóð, innheimtu og umsýslu Garðabæjar fyrir foreldrafélögin.$line$e) Marta Sigurðardóttir leikskólastjóri Kirkjubóls gekk með nefndarmönnum um leikskólann og kynnti starfsemi hans. Einkunnarorð skólans, sem er á sínu þrítugasta starfsári eru virðing, vinátta og væntumþykja. Leikskólinn starfar eftir fjölgreindarkenningu Gardners og leggur einnig áherslu á umhverfismennt.
Leikskólanefnd Garðabæjar
09
7. fundur
Kynning á leikskólanum Hæðarbóli
1) Rætt um miðlægan biðlista fyrir leikskóla. Kostir þess eru þeir að þá fæst betri yfirsýn yfir stöðu biðlistans. Einnig fá foreldrar þá tilboð um þann skóla sem þeir setja í fyrsta eða annað sæti. Eins og staðan er í dag er hægt að sækja um á allt að fjóra leikskóla þar sem Sjáland og leikskólar Hjallastefnunnar sjá sjálfir um biðlistann. Fá þá sumir foreldrar tilboð um marga leikskóla.$line$2) Ingibjörg Gunnarsdóttir kynnti starfsemi Hæðarbóls. Þar er hátt hlutfall fagmenntaðra leikskólakennara með langan starfsaldur. Unnið er m.a. með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, útikennslu og vísindi svo að eitthvað sé nefnt. Hæðarból er í farsælu samstarfi við Hofsstaðaskóla með tíðum gagnkvæmum heimsóknum elstu barna leikskólans og yngstu barna grunnskólans.
Leikskólanefnd Garðabæjar
10
6. fundur
Leikskólastjóri Holtakots kynnir starfsemi skólans.
1) Leikskólafulltrúi fór yfir stöðu á innritun fyrir haustið 2015 en 148 börn verða komin á úthlutunaraldur hjá bæjarleikskólum og 144 börn hætta og fara í grunnskóla.$line$2) Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri og Anna Kristín Sveinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri kynntu starf Holtakots sem starfar eftir Heilsustefnunni. Gengið var um leikskólann og starf hans rætt.