Beint í efni

11. fundur

15.06.2015
Leikskólanefnd Garðabæjar

11. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

15.06.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1505078

01

Viðhorfskönnun dagforeldrar 2015

Niðurstöður könnunar kynntar

95% þeirra sem svöruðu könnuninni eru ánægðir með daggæslu barns síns. Öllum foreldrum fannst barni sínu líða vel í daggæslunni. Helstu tillögur til úrbóta eru að dagforeldrar kynni matseðil fyrir foreldrum vikulega og upplýsi þá um innihald og hollustu matarins. Einnig að dagforeldrar gefi sér tíma til að upplýsa foreldra um hvernig dagurinn gekk fyrir sig hjá barninu í daggæslunni.

Málsnúmer 1505079

02

Símenntun starfsfólks leikskóla

Áætlun næsta vetrar

Farið var yfir þau námstækifæri sem starfsfólk leikskóla hefur aðgang að. Starfsfólk sem ekki hefur háskólamenntun er bent á nám með vinnu í leikskólabrú Fjölbrautarskólans í Garðabæ, en brúin gefur einingar til stúdentsprófs. Einnig er starfsfólki bent á nám til diplómu, B.Ed og M.Ed á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og í Háskólanum á Akureyri. Í báðum skólum er hægt að stunda nám með vinnu. Nefndarmenn voru upplýstir um styrki sem Garðabær veitir starfsfólki skóla til náms.$line$Farið yfir þá símenntun og starfsþróun sem sveitarfélögin í Kraganum standa að fyrir starfsfólk leikskóla, en vikuleg námskeið eru í boði allan veturinn. Að lokum var tillaga að örnámskeiðum í læsi fyrir deildarstjóra leikskóla í Garðabæ kynnt, en hugmyndin er að halda þau mánaðarlega næsta vetur.

Málsnúmer 1506044

03

Framkvæmdir við leikskóla 2015

Farið yfir framkvæmdir árið 2015

Farið var yfir framkvæmdir og viðhald leikskóla í Garðabæ þetta árið.$line$Unnið er að reglulegu viðhaldi í öllum leikskólum, deildir málaðar og dúkar lagaðir. Einnig er verið að mála glugga og þakkanta á nokkrum leikskólum. Á Sunnuhvoli er verið að leggja lokahönd á breytingar á húsnæði vegna breyttrar aldurssamsetningar á barnahópnum.$line$Lóðarframkvæmdum við Ása lýkur í sumar og byrjað verður á fyrsta áfanga af fjórum á lóð Krakkakots.

Málsnúmer 1501092

04

Kynningar og önnur mál 2015

Leikskólastjóri Lundabóls kynnir starfsemi skólans

1) Lovísa Anna Pálmadóttir fulltrúi foreldra sagði frá fundi sem hún átti með formönnum foreldraráða og foreldrafélaga leikskóla í Garðabæ. Góð mæting var á fundinn og ríkti almenn ánægja meðal fulltrúa með starfsemi leikskóla í Garðabæ. Nokkuð var rætt um viðhald og framkvæmdir við leikskólana. Hyggst hópurinn hitta bæjarstjóra að sumarleyfum loknum.$line$2) Kristjana F. Sigursteinsdóttir hefur óskað eftir árs leyfi frá nefndarstörfum vegna dvalar sinnar erlendis. $line$3) Björg Helga Geirsdóttir leikskólastjóri Lundabóls kynnti nefndarmönnum starfsemi leikskólans og sýndi þeim húsnæðið. Nokkur umræða varð um stækkun Lundabóls og viðhald húsnæðisins.