Símenntun starfsfólks leikskóla
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Áætlun næsta vetrar
Farið var yfir þau námstækifæri sem starfsfólk leikskóla hefur aðgang að. Starfsfólk sem ekki hefur háskólamenntun er bent á nám með vinnu í leikskólabrú Fjölbrautarskólans í Garðabæ, en brúin gefur einingar til stúdentsprófs. Einnig er starfsfólki bent á nám til diplómu, B.Ed og M.Ed á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og í Háskólanum á Akureyri. Í báðum skólum er hægt að stunda nám með vinnu. Nefndarmenn voru upplýstir um styrki sem Garðabær veitir starfsfólki skóla til náms.$line$Farið yfir þá símenntun og starfsþróun sem sveitarfélögin í Kraganum standa að fyrir starfsfólk leikskóla, en vikuleg námskeið eru í boði allan veturinn. Að lokum var tillaga að örnámskeiðum í læsi fyrir deildarstjóra leikskóla í Garðabæ kynnt, en hugmyndin er að halda þau mánaðarlega næsta vetur.