Framkvæmdir við leikskóla 2015
Málsnúmer 1506044
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Farið yfir framkvæmdir árið 2015
Farið var yfir framkvæmdir og viðhald leikskóla í Garðabæ þetta árið.$line$Unnið er að reglulegu viðhaldi í öllum leikskólum, deildir málaðar og dúkar lagaðir. Einnig er verið að mála glugga og þakkanta á nokkrum leikskólum. Á Sunnuhvoli er verið að leggja lokahönd á breytingar á húsnæði vegna breyttrar aldurssamsetningar á barnahópnum.$line$Lóðarframkvæmdum við Ása lýkur í sumar og byrjað verður á fyrsta áfanga af fjórum á lóð Krakkakots.