Beint í efni

6. fundur

19.01.2015
Leikskólanefnd Garðabæjar

6. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

19.01.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4.desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.$line$Í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 og gr. 4.2.4. í Skipulagsreglugerð nr.90/2013 er lýsingin nú kynnt almenningi og umsagnaraðilum. Er hún hér með sent nefndum bæjarins til kynningar. Frestur til að skila inn umsögnum eða ábendingum vegna lýsingarinnar er til 17.febrúar 2015. Senda skal umsagnir eða ábendingar til skipulagsstjóra Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.$line$Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar að Garðatorgi 7.$line$Almennur kynningarfundur verður haldinn í Flataskóla miðvikudaginn 14.janúar og hefst hann klukkan 17.30. Þar verður lýsingin og innihald hennar kynnt almenningi.

Lýsing á gerð aðalskipulags Garðabæjar lögð fram og rædd. Leikskólanefnd telur mikilvægt að gert sé ráð fyrir góðri aðkomu, aðgengi og rými fyrir þær stofnanir sem sinna börnum.

Málsnúmer 1412089

02

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um byrjendaleyfi

Signý Antonsdóttir kt. 060292-2489 fær leyfi til eins árs til gæslu fjögurra barna.

Málsnúmer 1412088

03

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um byrjendaleyfi

Sigrún Antonsdóttir kt. 020788-2409 fær leyfi til eins árs til gæslu fimm barna.

Málsnúmer 1501052

04

Þróunarsjóður leikskóla

Drög að úthlutunarreglum úr þróunarsjóði leikskóla

Farið yfir drög að úthlutunarreglum fyrir þróunarsjóð leikskóla. Rætt um hvort sjálfstæðir leikskólar ættu að hafa aðgang að sjóðnum þar sem gert sé ráð fyrir skólaþróun í framlagi til þeirra. Tilgangur sjóðsins væri að efla bæjarrekna leikskóla í þróun starfs síns.

Málsnúmer 1501092

05

Kynningar og önnur mál 2015

Leikskólastjóri Holtakots kynnir starfsemi skólans.

1) Leikskólafulltrúi fór yfir stöðu á innritun fyrir haustið 2015 en 148 börn verða komin á úthlutunaraldur hjá bæjarleikskólum og 144 börn hætta og fara í grunnskóla.$line$2) Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri og Anna Kristín Sveinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri kynntu starf Holtakots sem starfar eftir Heilsustefnunni. Gengið var um leikskólann og starf hans rætt.