Beint í efni

13. fundur

21.09.2015
Leikskólanefnd Garðabæjar

13. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

21.09.2015

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Auk þess sátu fundinn Unnur Johnsen aðalmaður, Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs og Halldóra Pétursdóttir verkefnastjóri á skóladeild.

Dagskrá

Málsnúmer 1508140

01

Ársskýrsla leikskóla 2014 - 2015

Samantekt á málefnum leikskóla í Garðabæ og ársskýrslur leikskólanna.

Farið yfir ársskýrslur leikskólanna. Skýrslurnar endurspegla fjölbreytt starf leikskólanna og lýsa því mati sem fram hefur farið á starfinu. Umræða varð um slysaskráningar og umbætur sem gerðar eru í kjölfar slysa.

Málsnúmer 1502261

02

Skóladagatal 2015-2016

Beiðni um flutning á skipulagsdegi

Lundaból óskar eftir flutningi á starfsdegi vorið 2016 vegna námsferðar starfsfólks. Nefndin samþykkir flutninginn með því skilyrði að foreldraráð hafi víðtækt samráð við foreldra t.d. með tölvupósti.

Málsnúmer 1501092

03

Kynningar og önnur mál 2015

Kynning leikskólastjóra Sunnuhvols

1)Guðrún Brynjólfsdóttir staðgengill leikskólastjóra gerði grein fyrir starfsemi Sunnuhvols og sýndi nefndarmönnum húsnæði hans. Breytingar hafa verið gerðar á húsnæði og starfsemi leikskólans til að koma til móts við þarfir yngstu barnanna. Nefndarmenn lýstu ánægju sinni yfir starfi Sunnuhvols.

2) Formaður þakkaði Önnu Magneu leikskólafulltrúa fyrir vel unnin störf í þágu Garðabæjar og óskaði henni velfarnaðar í nýju starfi. Einnig bauð formaður Halldóru Pétursdóttir verkefnastjóra á skóladeild velkomna til starfa.