Beint í efni

12. fundur

17.08.2015
Leikskólanefnd Garðabæjar

12. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

17.08.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
  • Katrín Friðriksdóttir - embættismaður

Starfsmenn

  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1501316

01

Úttekt á leikskóla - Sjáland

Skýrsla Námsmatsstofnunar um ytra mat á leikskólanum Sjálandi.

Leikskólanefnd fagnar niðurstöðu mats á starfsemi Sjálands. Farið var yfir helstu styrkleika leikskólans sem fram komu í skýrslunni og tækifæri til umbóta að mati matsmanna Námsmatsstofnunnar. Einnig var farið yfir drög að tímasettri umbótaáætlun um hvernig brugðist verður við þeim ábendingum sem fram komu í skýrslunni. Umbótaáætluninni vísað til bæjarstjóra sem hefur það hlutverk að koma henni á framfæri við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Málsnúmer 1506194

02

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Endurnýjun á leyfi til gæslu eins barns

Eydís Guðrún Sigurðardóttir kt. 151056-2109 fær tímabundið leyfi til gæslu eins barns.

Málsnúmer 1507218

03

Erasmusplús styrkur - Hér er ég!

Styrkur veittur leikskólanum Kirkjubóli

Umsókn Kirkjubóls til Erasmus um styrk til að vinna að gerð ferilmöppu með mati á námi barna með hliðsjón af fjölgreindarkenningu Howard Gardners var samþykkt og var styrkt að upphæð 106.430 evrur eða um 15.664.000 íslenskar krónur. Verkefnið verður unnið árin 2015 - 2017 með leikskólum í Svíþjóð, Belgíu og Noregi. 15 leikskólakennarar taka þátt í vinnustofum og semja leiðbeiningar um gerð ferilmappa sem verða aðgengilegar á heimasíðu verkefnisins.

Málsnúmer 1507221

04

Skýrsla starfshóps vegna þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi

Vegna þingsályktunar nr.5/143 dags 19. des 2013.

Skýrsla starfshóps um leikskóla að loknu fæðingarorlofi lögð fram. Starfshópurinn greindi faglegar kröfur og fjárhagsleg sjónarmið sem taka þurfi tillit til. Niðurstaða hópsins er að faglegt leikskólastarf er sá kostur sem þykir eftirsóknaverðastur fyrir börn og foreldra og mætir best kröfum atvinnulífsins. Í Garðabæ eru öll börn að komast að í leikskóla um eins árs aldur, annað hvort í almennum leikskólum eða ungbarnaleikskólum. Fagnar nefndin þeim áfanga sem náðst hefur í að tryggja öllum börnum leikskóladvöl svo snemma. Laust er hjá dagforeldrum í Garðabæ fyrir yngri börn.

Málsnúmer 1501052

05

Þróunarsjóður leikskóla

Seinni úthlutun þróunarsjóðs 2015 - áhersluþættir

Seinni úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla fer fram að hausti. Þá eru til úthlutunar 20% sjóðsins. Ákveðið að styðjast við sömu áhersluþætti og voru í fyrri úthlutun og að auglýsa eftir umsóknum um mánaðarmótin ágúst/september.

Málsnúmer 1507238

06

Þjóðarsáttmáli um læsi

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna þjóðarsáttmála um læsi

Mennta- og menningarmálaráðherra býður öllum bæjar- og sveitarstjórnum að undirrita Þjóðarsáttmála um læsi þar sem aðilar samningsins, ríki og sveitarfélög, skuldbinda sig til að vinna að því að ná því marki að 90% nemenda í 10. bekk nái lágmarksviðmiðum um að geta lesið sér til gagns í Pisa könnuninni.Stefnt er að því að sáttmálinn verði undirritaður með mennta- og menningarmálaráðherra í Garðabæ þann 28. ágúst nk.

Málsnúmer 1505093

07

Virkur vinnustaður - þróunarverkefni

Vilhjálmur Kári Haraldsson mannauðsstjóri Garðabæjar kynnir þróunarverkefni sem unnið var á leikskólunum í samstarfi við Virk.

Vilhjálmur Kári Haraldsson mannauðsstjóri Garðabæjar kynnti þróunarverkefni í viðverustjórnun sem unnið var á leikskólum í Garðabæ í samstarfi við Virk starfsendurhæfingarsjóð. Leikskólarnir mótuðu sér viðverustefnu og innleiddu viðverusamtöl. Einnig var unnið að heilsueflandi verkefnum sem tengdust næringu, hreyfingu, líkamsbeitingu í starfi og starfsánægju.

Málsnúmer 1501092

08

Kynningar og önnur mál 2015

Kynning leikskólastjóra

a) Fyrirspurn kom frá nefndarmanni um hvernig aðlögun barna í leikskóladeild Flataskóla væri háttað og hvort hún væri ekki í samræmi við aðlögun barna í aðra leikskóla. Deildarstjóra skóladeildar falið að kanna málið.

Einnig urðu umræður um þau börn sem eru að byrja í grunnskóla og hvort ekki væri hægt að bjóða þeim aðlögun að grunnskólanum í tómstundaheimilunum áður en grunnskólinn hefst eða frá byrjun ágúst. Þá gæti aðlögun yngri barna hafist fyrr á haustin í leikskólunum.

b) Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir staðgengill leikskólastjóra kynnti starf leikskólans Sjálands og sýndi nefndarmönnum húsnæðið. Sjáland er fjölmennasti leikskóli í Garðabæ en þar dvelja um 150 börn um um 50 starfsmenn. Elstu börnin hafa aðstöðu í Sjálandsskóla. Hverju barni er mætt þar sem það er statt og áhersla lögð á fjölbreytni og einstaklingsmiðað nám út frá fjölgreindarkenningu Howard Gardners.