Erasmusplús styrkur - Hér er ég!
Málsnúmer 1507218
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Styrkur veittur leikskólanum Kirkjubóli
Umsókn Kirkjubóls til Erasmus um styrk til að vinna að gerð ferilmöppu með mati á námi barna með hliðsjón af fjölgreindarkenningu Howard Gardners var samþykkt og var styrkt að upphæð 106.430 evrur eða um 15.664.000 íslenskar krónur. Verkefnið verður unnið árin 2015 - 2017 með leikskólum í Svíþjóð, Belgíu og Noregi. 15 leikskólakennarar taka þátt í vinnustofum og semja leiðbeiningar um gerð ferilmappa sem verða aðgengilegar á heimasíðu verkefnisins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
30. (1698). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að staðfesta að Garðabær samþykkir móttöku styrks.