30. (1698). fundur
30. (1698). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
11.08.2015
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1409324
01
Heimild til lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og fór yfir heimildir til lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
Á fundi bæjarstjórnar 4. mars sl. var samþykkt að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 330.000.000 en heimild samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 800.000.000.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra um að leita tilboða í lántöku að fjárhæð allt að kr. 470.000.000 með stækkun á áður útgefnum flokki til lántöku.
Tilboð vegna lánveitinga verða lögð fram til afgreiðslu í bæjarráði.
Málsnúmer 1507218
02
Bréf Erasmusplús vegna styrkveitingar, dags. 24.06.15.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að staðfesta að Garðabær samþykkir móttöku styrks.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508035
03
Bréf Námsgagnasjóðs vegna úthlutunar úr sjóðnum, dags. 05.08.15.
Lagt fram bréf Námsgagnasjóðs um fjárveitingar til grunnskóla vegna námsgagnakaupa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1507238
04
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna þjóðarsáttmála um læsi, dags. 29.07.15.
Í bréfinu er kynnt samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimili og skóla um gerð Þjóðarsáttmála um læsi.
Vísað til umfjöllunar skólanefndar grunnskóla, leikskólanefndar og ungmennaráðs.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti þjóðarsáttmálaum ásamt öðrum bæjar- og sveitarstjórum landsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1411225
05
Bréf Hjallastefnunnar vegna breytinga á starfsemi Vífilsskóla, dags. 30.07.15.
Lagt fram bréf Hjallastefnunnar þar sem kynnt er ákvörðun framkvæmdastjórnar Hjallastefnunnar um að leggja niður miðstig Vífilskóla í Garðabæ frá og með haustinu 2016.
Vísað til umfjöllunar skólanefndar grunnskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1506304
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna byggingarleyfisumsóknar við Krókamýri 62 og 64, dags. 26.06.15.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við parhúsið Krókamýri 70-72, þar sem staðfest deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1506137
07
Bréf eiganda Haukaness 17 vegna byggingarframkvæmda við Haukanes 15, dags. 04.08.15.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að samkvæmt upplýsingum byggingarfulltrúa hafa framkvæmdir við Haukanes 15 verið stöðvaðar.