Beint í efni

Þjóðarsáttmáli um læsi

Málsnúmer 1507238

Ferill máls

Ungmennaráð Garðabæjar

01

13. fundur

Samningurinn kynntur fyrir fulltrúum

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

14. fundur

Skólanefnd lýsir yfir ánægju með þjóðarsáttmálann. Í samræmi við skólastefnu Garðabæjar munu allir leik- og grunnskólar í Garðabæ endurskoða lestrarstefnur sínar. Skólanefnd í samstarfi við skólastjóra mun leggja fram tillögur um hvernig Garðabær geti sem best staðið við sinn hluta samningsins. Skólanefnd felur skóladeild að kalla eftir tímasettri aðgerðaráætlun frá Menntamálastofnun varðandi þeirra hluta samningsins þannig að bærinn geti skipulagt vinnu sína sína í samræmi við það.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (1702). fundur

Bæjarráð vísar undirrituðum samningi til kynningar í leikskólanefnd, skólanefnd og ungmennaráði.

Fylgiskjöl

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

12. fundur

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna þjóðarsáttmála um læsi

Mennta- og menningarmálaráðherra býður öllum bæjar- og sveitarstjórnum að undirrita Þjóðarsáttmála um læsi þar sem aðilar samningsins, ríki og sveitarfélög, skuldbinda sig til að vinna að því að ná því marki að 90% nemenda í 10. bekk nái lágmarksviðmiðum um að geta lesið sér til gagns í Pisa könnuninni.Stefnt er að því að sáttmálinn verði undirritaður með mennta- og menningarmálaráðherra í Garðabæ þann 28. ágúst nk.

Bæjarráð Garðabæjar

05

30. (1698). fundur

Í bréfinu er kynnt samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimili og skóla um gerð Þjóðarsáttmála um læsi.
Vísað til umfjöllunar skólanefndar grunnskóla, leikskólanefndar og ungmennaráðs.

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti þjóðarsáttmálaum ásamt öðrum bæjar- og sveitarstjórum landsins.

Fylgiskjöl