14. fundur
14. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
24.09.2015
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Sigrún Edda Eðvarðsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1509266
01
Fjöldi grunnskólanemenda í Garðabæ skólaárið 2015-2016
Upplýsingar um fjölda nemenda í einstökum skólum við upphaf skólahalds skólaárið 2015-2016.
Lagt fram yfirlit yfir heildarfjölda nemenda. Á næsta fundi nefndarinnar verða lögð fram gögn þar sem búið verður að greina fjölda nemenda í hverjum árgangi sem ekki eiga lögheimili í Garðabæ sem og fjölda nemenda úr Garðabæ sem stunda nám í öðrum sveitarfélögum. Slíkar upplýsingar liggja að jafnaði fyrir þann 1. október í samvinnu við Þjóðskrá og Hagstofu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1507238
02
Þjóðarsáttmáli um læsi
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með þjóðarsáttmálann. Í samræmi við skólastefnu Garðabæjar munu allir leik- og grunnskólar í Garðabæ endurskoða lestrarstefnur sínar. Skólanefnd í samstarfi við skólastjóra mun leggja fram tillögur um hvernig Garðabær geti sem best staðið við sinn hluta samningsins. Skólanefnd felur skóladeild að kalla eftir tímasettri aðgerðaráætlun frá Menntamálastofnun varðandi þeirra hluta samningsins þannig að bærinn geti skipulagt vinnu sína sína í samræmi við það.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508095
03
Ársskýrslur grunnskóla 2014-2015
Ársskýrslur skólanna lagðar fram til kynningar - þar má finna yfirlit yfir skólastarf síðasta árs.
Ársskýrslur grunnskólanna lagðar fram til kynningar. Skólanefnd þakkar skólastjórnendum fyrir upplýsandi skýrslur sem bera vott um metnaðarfullt skólastarf og gefa góða mynd af starfi skólanna sl. skólaár. Skólanefnd felur skóladeild í samvinnu við skólastjóra að kom með tillögu að samræmdu samantektarblaði þar sem fram koma lykilþættir skólastarfs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509040
04
Fyrirspurn um undanþágur og fjarvistir í samræmdum könnunarprófum.
Fyrirspurn Menntamálastofnunnar vegna undanþága og fjarvista í samræmdum könnunarprófum, kynning Menntamálastofnunnar á þátttöku almennt og svar skóladeildar við fyrirspurn.
Í Garðabæ er þátttökuhlutfall hátt í samræmdum könnunarprófum eða um 95% sem er með því hæsta sem gerist á landsvísu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508236
05
Eftirfylgni með könnun á innleiðingu laga
Eftirfylgni Mennta og menningarmálaráðuneytis með innleiðingu laga og svör þeirra þriggja skóla sem fengu athugasemdir
Lagt fram
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1508255
06
Áskorun um gjaldfrjálsan grunnskóla
Erindi frá Barnaheill
Lagt fram til kynningar. Rætt um kostnað við námsgögn og vettvangsferðir. Mikilvægt að í skólanum sé lögð áhersla á góða nýtingu námsgagna og að farið sé lögum hvað varðar kostnað sem fellur á foreldra vegna námsgagna og vettvangsferða. Skóladeild falið að kalla eftir tillögum frá skólastjórnendum um hvernig hægt sé að lágmarka þann kostnað sem fellur á foreldra vegna námsgagna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1411225
07
Endurskoðun samnings um framlag með nemendum í 1.-7. bekkjar Barnaskóla Hjallastefnunnar
Skólanefnd telur miður að það dragi úr fjölbreytni í skólaumhverfi bæjarins á miðstigi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505275
08
Tillaga um hinsegin fræðslu
Skólanefnd tekur jákvætt í erindið og felur skóladeild í samvinnu við skólastjóra nánari útfærslu.