Beint í efni

Endurskoðun samnings um framlag með nemendum í 1.-7. bekkjar Barnaskóla Hjallastefnunnar

Málsnúmer 1411225

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

14. fundur

Skólanefnd telur miður að það dragi úr fjölbreytni í skólaumhverfi bæjarins á miðstigi.



Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

30. (1698). fundur

Lagt fram bréf Hjallastefnunnar þar sem kynnt er ákvörðun framkvæmdastjórnar Hjallastefnunnar um að leggja niður miðstig Vífilskóla í Garðabæ frá og með haustinu 2016.

Vísað til umfjöllunar skólanefndar grunnskóla.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

19. (1687). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að endurskoðun samnings við Hjallastefnuna um starfsemi leikskóla fyrir 5 ára börn og grunnskóla fyrir 1. - 7. bekk að Vífilsstöðum.$line$$line$Bæjarráð vísar endurskoðun samningsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

45. fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til ákvæðis í 13. gr. samnings Garðabæjar og Hjallastefnunnar um starfsemi grunnskóla, dags. 13. desember 2013 að fram fari endurskoðun á ákvæðum samningsins og skal henni lokið innan þriggja mánaða eins og mælt er fyrir um í tilvitnuðu ákvæðinu. Bæjarráð samþykkir að þar til niðurstöður aðila um endurskoðun samningsins liggja fyrir skuli ekki koma til lækkunar á framlagi til Barnaskóla Hjallastefnunnar.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja þegar viðræður við bréfritara um endurskoðun samningsins.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.