19. (1687). fundur
19. (1687). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.05.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1505105
01
Bréf Bergþóru Bergsdóttur ofl. varðandi bætta aðstöðu við baðströndina á Sjálandi, dags. 11.5. og 13.5.2015.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 vegna hugmynda um framkvæmdir á svæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1409324
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Viðaukar 1-4
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.$line$$line$Viðauki 1 kr. 60.000.000 Viðhald gatna$line$Viðauki 2 kr. 1.500.000 Framlag samkvæmt lögum um orlof húsmæðra $line$Viðauki 3 kr. 6.000.000 Sjálandsskóli - launakostnaður$line$Viðauki 4 kr. 44.000.000 Framlag til GKG $line$Viðauki 4 kr. 50.000.000 Framlag til golfskála GKG skv. framkvæmdayfirliti fellur niður$line$$line$Ofangreindum viðaukum nr. 1-4 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 61.500.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503196
03
Leiðbeiningarit frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um undirbúning og afgreiðslu fjárhagsáætlana.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1410266
04
Útboð vegna uppsteypu 1. áfanga Urriðaholtsskóla.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði útboð vegna uppsteypu 1. áfanga Urriðaholtsskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503316
05
Kostnaðargreining vegna byggingar fjölnota íþróttahúss
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir frumskoðun á áætluðum áhrifum á fjárhag Garðabæjar komi til byggingar fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Fjármálastjóri lagði fram yfirlit þar sem áhrifin eru sýnd miðað við mismunandi stærð af húsum þar sem áætlaður kostnaður er frá 650 mkr til 1.850 mkr.$line$$line$Bæjarstjóri upplýsti að á vegum íþróttafulltrúa er verið að vinna að samantekt varðandi möguleika á fjölbreyttri notkun fjölnota íþróttahúss.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505094
06
Bréf sýslumanns varðandi umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi fyrir veitingastað í golfskála GKG, dags. 15.05.2015.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1403066
07
Bréf reiðveganefndar Spretts um uppsetningu og gerð vegprestar og fræðsluskilta við reiðleiðir, dags. 10.05.2015.
Málsnúmer 1505022
08
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við jazztónleika í september 2015
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Ómari Guðjónssyni, tónlistarmanni styrk að fjárhæð kr. 120.000 vegna jazztónleika sem fyrirhugað er að halda í Garðabæ í september 2015.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505037
09
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við hádegistónleikaraðar í Garðabæ sumarið 2015.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Aroni Erni Óskarssyni, tónlistarmanni styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna hádegistónleikaraðar í Garðabæ sumarið 2015.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1501299
10
Bréf upplýsinga- og menningarfulltrúa varðandi umsögn menningar- og safnanefndar um minjaskálann við Hofsstaði, dags. 15.05.2015.
Lagt fram minnisblað menningar- og safnanefndar þar sem lýst er yfir jákvæðri afstöðu til þess að starfshópur verði settur á laggirnar sem fengi það hlutverk að leita leiða til að efla hlutverk, starfsemi og uppbyggingu minjagarðsins á Hofsstöðum og styrkja þróun í nýjum miðbæ Garðabæjar.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánari útfærslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1302036
11
Greinargerð leikskólafulltrúa og upplýsinga- og menningarfulltrúa um norrænt samstarfsverkefni leikskóla, dags. 15.05.2015.
Lögð fram.$line$$line$Við umræðu um málið kom fram fyrirspurn frá Halldóri Jörgenssyni um stöðu á netbúnaði í stofnunum bæjarins. Fyrirspurninni er vísað til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503132
12
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2015.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistarmanni Garðabæjar árið 2015.
Málsnúmer 1412101
13
Samstarfsyfirlýsing um mál er varða heimilisofbeldi, dags. 15.05.2015.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti yfirlýsingu embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sveitarfélaganna Kópavogs Hafnarfjarðar og Garðabæjar um samstarf vegna mála er varða heimilisofbeldi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1411225
14
Endurskoðun samnings um framlag með nemendum í 1.-7. bekkjar Barnaskóla Hjallastefnunnar
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að endurskoðun samnings við Hjallastefnuna um starfsemi leikskóla fyrir 5 ára börn og grunnskóla fyrir 1. - 7. bekk að Vífilsstöðum.$line$$line$Bæjarráð vísar endurskoðun samningsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1502447
15
Undirskriftarlistar íbúa í nágrenni við Hofsstaðamýri varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss.
Málsnúmer 1503229
16
Umsókn um byggingarleyfi - Haukanes 28
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna endurnýjunar á klæðningu og innra skipulagi einbýlishússins við Haukanes 28.
Málsnúmer 1504003
17
Umsókn um byggingarleyfi - Bæjargata 11-19
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar raðhúsa við Bæjargötu 11-19.
Málsnúmer 1501400
18
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 27
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss með tíu íbúðum við Holtsveg 27.
Málsnúmer 1501399
19
Umsókn um byggingarleyfi - Hraungata 19-23
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss með fjórum íbúðum við Hraungötu 19 - 23.