Beint í efni

Minjagarður við Hofsstaði

Málsnúmer 1501299

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

26. fundur

Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá fyrirhuguðum fundi með fyrirtækinu Gagarín þar sem farið verður yfir það nýjasta sem fyrirtækið hefur verið að gera á sviði menningarframsetningar með það í huga að skoða með hvaða hætti væri hægt að efla minjagarðinn og upprunalegt margmiðlunarefni garðsins.
Einnig er verið að skoða í samvinnu við landslagsarkitekt hvernig umhverfi bæjarins Hofsstaða geti litið út og þá um leið væri æskilegt að skoða einnig tengingu við minjagarðinn og miðbæjarsvæðið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

19. (1687). fundur

Lagt fram minnisblað menningar- og safnanefndar þar sem lýst er yfir jákvæðri afstöðu til þess að starfshópur verði settur á laggirnar sem fengi það hlutverk að leita leiða til að efla hlutverk, starfsemi og uppbyggingu minjagarðsins á Hofsstöðum og styrkja þróun í nýjum miðbæ Garðabæjar.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánari útfærslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Framhald umræðu frá fundi menningar- og safnanefndar þann 13. mars sl. um tillögu, sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2015 að vísa til menningar- og safnanefndar, varðandi eftirfylgni samþykktar bæjarstjórnar frá ársbyrjun 2001 um minjagarðinn við Hofsstaði. $line$$line$Minnisblað unnið af upplýsinga- og menningarfulltrúa ásamt formanni þar sem farið er yfir stöðu minjagarðsins og hvernig hægt er að tengja hann enn frekar við miðbæjarsvæði Garðabæjar, í anda framkominnar tillögu, var lagt fram og rætt. $line$$line$Samþykkt var að senda bæjarráði minnisblaðið sem umsögn menningar- og safnanefndar um fram komna tillögu.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Framhald umræðu frá fundi menningar- og safnanefndar þann 13. mars sl. um tillögu, sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2015 að vísa til menningar- og safnanefndar, varðandi eftirfylgni samþykktar bæjarstjórnar frá ársbyrjun 2001 um minjagarðinn við Hofsstaði. $line$Fyrir fundinum lá minnisblað unnið af upplýsinga- og menningarfulltrúa ásamt formanni þar sem farið er yfir stöðu minjagarðsins og hvernig hægt er að tengja hann enn frekar við miðbæjarsvæði Garðabæjar, í anda framkominnar tillögu. $line$Lagt fram og tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar 13. maí nk. $line$

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2015 að vísa til menningar- og safnanefndar framkominni tillögu varðandi eftirfylgni samþykktar bæjarstjórnar frá ársbyrjun 2001 varðandi minjagarðinn við Hofsstaði. $line$Fyrir fundinum lá minnisblað formanns og upplýsinga- og menningarfulltrúa eftir fund þeirra þann 25.02.2015 með fyrrum formanni menningar- og safnanefndar og Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi, sem hefur haft umsjón með fornleifarannsóknum á Hofsstöðum undanfarin ár, þar sem farið var yfir forsögu málsins og stöðu fornleifarannsókna á Hofsstöðum. Í minnisblaðinu eru settar fram hugmyndir um eflingu minjagarðsins á Hofsstöðum með hliðsjón af samþykkt bæjarstjórnar frá 2001. $line$Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að vinna áfram að málinu og leggja fram á næsta fundi greinargerð þar sem fram komi nánari aðgerðaráætlun og greining kostnaðar við að efla minjagarðinn og tengja hann enn frekar við miðbæjarsvæði Garðabæjar, í anda framkominnar tillögu.$line$

Bæjarráð Garðabæjar

06

6 (1674). fundur

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.