8. fundur
8. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í fundarherbergi 5. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.05.2015
Kl. 08:15 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2015
Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram. Fyrirliggjandi umsóknir, sem sendar voru nefndarmönnum með fundarboði, voru lagðar fram og ræddar. $line$Samþykkt að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2015 sem munu jafnframt fá afhent viðurkenningarskjal þar um á uppskeruhátíð menningar og lista þann 28. maí nk.: $line$$line$Silja Hinriksdóttir, kt. 171189-3149, styrk að upphæð 100 000 kr, fyrir hönnarvinnu.$line$Gospelkór Jóns Vídalín, kt. 570169-5649, styrk að upphæð 150 000 kr, fyrir tónleikahald.$line$Kolbeinn Þórsson, kt. 180398-3099, styrk að upphæð 100 000 kr, fyrir tónleikahald í Garðabæ með hljómsveitinni Lucy Blue. $line$Inga Huld Hákonardóttir, kt. 151290-2649, styrk að upphæð 100 000 kr, fyrir kynningarsýningu á dansverki. $line$$line$Samningar verða gerðir við alla styrkþega þar sem kveðið er á um skilyrði vegna úthlutunar úr hvatningarsjóðnum.
03
Tillaga um skipun starfshóps til að fylgja eftir tillögu frá 2001 um byggingu minjaskála
Framhald umræðu frá fundi menningar- og safnanefndar þann 13. mars sl. um tillögu, sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2015 að vísa til menningar- og safnanefndar, varðandi eftirfylgni samþykktar bæjarstjórnar frá ársbyrjun 2001 um minjagarðinn við Hofsstaði. $line$$line$Minnisblað unnið af upplýsinga- og menningarfulltrúa ásamt formanni þar sem farið er yfir stöðu minjagarðsins og hvernig hægt er að tengja hann enn frekar við miðbæjarsvæði Garðabæjar, í anda framkominnar tillögu, var lagt fram og rætt. $line$$line$Samþykkt var að senda bæjarráði minnisblaðið sem umsögn menningar- og safnanefndar um fram komna tillögu.