Bæjarlistamaður Garðabæjar 2015.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1687). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistarmanni Garðabæjar árið 2015.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram. $line$Menningar- og safnafnefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar í ár. Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð á Garðaholti og fer þess jafnframt á leit við alla þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
7. fundur
Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2015 í byrjun apríl og var frestur auglýstur til 4. maí 2015. Fyrir fundinum lá listi yfir fram komnar ábendingar en listann fengu nefndarmenn sendan með fundarboði.$line$Umræður voru um tilnefningar til bæjarlistamanns Garðabæjar. Málið verður aftur á dagskrá næsta fundar menningar- og safnanefndar 13. maí nk.$line$
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Farið var yfir reglur um bæjarlistamann Garðabæjar og hvernig vali á bæjarlistamanni hefur verið háttað. Garðabær hefur frá árinu 1992 veitt starfsstyrki til listamanna og gerir menningar- og safnanefnd tillögur til bæjarstjórnar um úthlutun og koma aðeins til greina þeir listamenn sem búsettir eru í Garðabæ og hafa haft þar fasta búsetu í a.m.k. tólf mánuði. Að jafnaði hefur verið auglýst eftir ábendingum um bæjarlistamann í marsmánuði.$line$Samþykkt að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að auglýsa eftir ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar 2015. Farið verður yfir inn sendar ábendingar á næsta fundi menningar- og safnanefndar þann 8. maí nk.$line$