7. fundur
7. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Hönnunarsafni við Garðatorg
08.05.2015
Kl. 08:15 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1505027
01
Kynning á Hönnunarsafni Íslands
Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, sagði frá starfsemi safnsins, sýningum og verkefnum framundan.
Málsnúmer 1501381
02
Opinn fundur menningar- og safnanefndar
Menningar- og safnanefnd stóð fyrir opnum fundi um menningarmál miðvikudaginn 29. apríl 2015 í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Ábendingar og hugmyndir af fundinum voru lagðar fram. Eftir er að flokka niðurstöður umræðna enn frekar og verða þær sendar til nefndarmanna rafrænt. Niðurstöðurnar verða einnig sendar bæjarráði til kynningar og til birtingar almenningi á vef Garðabæjar.$line$Menningar- og safnanefnd mun taka niðurstöður fundarins til nánari skoðunar við mótun aðgerðaáætlunar Garðabæjar í menningarmálum til næstu ára en nefndin áformar að hefja þá vinnu í haust.$line$
Málsnúmer 1501341
03
Jazzhátíð Garðabæjar 2015
Jazzhátíð Garðabæjar var haldin í tíunda sinn dagana 23.-26. apríl sl. Fjölbreytt dagskrá var í boði og að þessu sinni var bryddað upp á þeirri nýjung að hafa sérstaka fræðsludagskrá nokkrum dögum fyrir tónleikahaldið. Góð aðsókn var á alla tónleikana. $line$Farið var yfir hvernig tókst til og færir menningar- og safnanefnd Sigurði Flosasyni, listrænum stjórnanda Jazzhátíðar Garðabæjar 2015, þakkir fyrir afar vel heppnaða hátíð í ár sem endranær.$line$
Málsnúmer 1501334
04
Þriðjudagsklassík 2015
Farið var yfir hvernig hefur tekist til með Þriðjudagsklassík nú á vorönn en þrennir tónleikar af fjórum í tónleikaröðinni 2015 hafa nú verið haldnir. Þriðju tónleikarnir fóru fram þriðjudagskvöldið 5. maí sl. en þá stigu á svið í sal Tónlistarskóla Garðabæjar Gunnar Kvaran á selló og Elísabet Waage á hörpu.
Málsnúmer 1503160
05
Söguganga bókasafnsins vor 2015
Sögugöngur Bókasafns Garðabæjar að vori hafa tekist vel undanfarin ár en sögugöngur safnsins voru fyrst haldnar í samstarfi við menningar- og safnanefnd vorið 2012. $line$Fyrri gangan af tveimur í ár var haldin í samstarfi við Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness. Farið var í fuglaskoðunarferð frá bókasafninu á Álftanesi laugardaginn 2. maí sl. undir leiðsögn Einars Ó. Þorleifssonar sem um árabil var formaður Fuglaverndunarfélags Íslands. Eftir gönguna var boðið upp á hressingu í bókasafninu. $line$Næsta ganga, sögu- og minjaganga á Garðaholti, verður farin laugardaginn 9. maí nk. Þá verður gengið um Garðaholt og Garðahverfi og burstabærinn Krókur heimsóttur. Leiðsögumaður verður Rúna K. Tetzschner, íslenskufræðingur og myndlistarmaður.$line$
Málsnúmer 1504141
06
Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar 2014
Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar 2014 var lögð fram og rædd. $line$Nýverið var staða forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar auglýst laus til umsóknar og mun nýr forstöðumaður væntanlega taka til starfa í lok sumars.$line$
Málsnúmer 1409212
07
100 ára afmæli kosningaréttar kvenna
Greint frá hugmyndum mannréttinda- og forvarnarnefndar í tengslum við 100 ár afmæli kosningaréttar kvenna.
Mannréttinda- og forvarnarnefnd Garðabæjar er að skoða ýmsar hugmyndir í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, m.a. hvort og þá hvaða viðburði sé unnt að tengja við Kvennahlaup Stjörnunnar 2015 sem fer fram 13. júní nk.$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi skýrði frá því að hjá Bókasafni Garðabæjar sé jafnframt verið að skoða ýmsar hugmyndir sem væri hægt að útfæra á safninu í tengslum við 100 ára afmælið, t.d. nálægt dagsetningu kvennahlaupsins og einnig þann 19. júní 2015.$line$
Málsnúmer 1505026
08
Jónsmessugleði 2015
Hin árlega Jónsmessugleði á vegum Grósku verður haldin fimmtudagskvöldið 25. júní nk. Jónsmessugleðin er nú haldin í sjötta sinn. Hátíðin hefur farið fram við strandstíginn í Sjálandi. Þar hafa Gróskufélagar sett upp myndlistarsýningu utandyra og ýmsir listamenn, kórar og félög hafa komið að dagskránni. $line$Gróska heldur utanum Jónsmessugleðina en fær ýmsa tæknilega aðstoð frá Garðabæ auk þess sem ungmenni í skapandi sumarstarfi hafa tekið þátt í hátíðinni. Þema Jónsmessuhátíðar í ár er ,,Tónar".$line$
Málsnúmer 1503131
09
Uppskeruhátíð menningar- og lista 2015
Uppskeruhátíð menningar- og lista 2015 verður haldin fimmtudaginn 28. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Farið var yfir hvernig dagskrá hefur verið síðustu ár og rætt um dagskrá í ár.$line$Markmið með uppskeruhátíð menningar og lista í Garðabæ er að vekja athygli á því mikla og góða framlagi sem listamenn í bæjarfélaginu, ungir sem aldnir, hafa fram að færa til menningar- og listalífs bæjarins. Jafnframt verða þar afhentar opinberar viðurkenningar Garðabæjar fyrir merkt framlag til menningar- og lista svo og hvatningarstyrkir bæjarins til ungra listamanna.$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúa mun annast undirbúning hátíðarinnar í ár sbr. ályktun frá fundi menningar- og safnanefndar þann 13. mars 2015$line$
Málsnúmer 1501344
10
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2015
Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn í apríl sl. og var umsóknarfrestur til 4. maí 2015. Fyrirliggjandi umsóknir, sem sendar voru nefndarmönnum með fundarboði, voru lagðar fram og ræddar. $line$Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi menningar- og safnanefndar 13. maí nk. $line$
Málsnúmer 1503132
11
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2015
Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2015 í byrjun apríl og var frestur auglýstur til 4. maí 2015. Fyrir fundinum lá listi yfir fram komnar ábendingar en listann fengu nefndarmenn sendan með fundarboði.$line$Umræður voru um tilnefningar til bæjarlistamanns Garðabæjar. Málið verður aftur á dagskrá næsta fundar menningar- og safnanefndar 13. maí nk.$line$
Málsnúmer 1505037
12
Umsókn um styrk fyrir tónlistarverkefni sumarið 2015 - hádegistónleikaröð
Tekin var fyrir umsókn frá Aroni Erni Óskarssyni tónlistarmanni, dagsett 5. maí 2015, um fjárstyrk vegna hádegistónleikaraðar í Garðabæ sumarið 2015. Um væri að ræða um klukkustundarlanga tónleika tveggja tónlistarmanna hverju sinni, Hádegisdúettar. Umsókninni fylgdi greinargerð og kostnaðaráætlun.$line$Menningar- og safnanefnd tekur undir með umsækjanda að tónleikaröð af þessu tagi gæti verið lyftistöng fyrir menningarlíf Garðabæjar og samþykkir að veita fjárstyrk að upphæð kr. 200.000 til verkefnisins í sumar. Skilyrði fyrir styrkveitingunni er að verkefnið verði unnið áfram í samráði við upplýsinga- og menningarfulltrúa Garðabæjar og að áður en til útgreiðslu styrkjarins kemur skal verkefnið hafa hlotið samþykki upplýsinga- og menningarfulltrúa. Mælst er til þess að viðburðirnir verði auglýstir opnir öllum íbúum Garðabæjar og að einhver viðburðanna verði sérstaklega tileinkaður eldri íbúum bæjarins og þá haldinn í Jónshúsi.$line$
Málsnúmer 1505022
13
Samstarf um jazztónleika í september 2015
Tekið var fyrir erindi frá Ómari Guðjónssyni tónlistarmanni, dags. 4. maí 2015, þar sem leitað er eftir áhuga menningar- og safnanefndar á því að kaupa upphafstónleika í um 20 tónleika röð umsækjanda með Tómasi R. Einarssyni kontrabassaleikara á hringferð um Ísland haustið 2015.$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita kr. 120.000 til verkefnisins og felur upplýsinga- og menningarfulltrúa að ræða við bréfritara um nánari útfærslu tónleikanna þann 27. september í Garðabæ, m.a. varðandi umfang og staðsetningu.$line$
Málsnúmer 1501299
14
Minjagarður við Hofsstaði
Framhald umræðu frá fundi menningar- og safnanefndar þann 13. mars sl. um tillögu, sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2015 að vísa til menningar- og safnanefndar, varðandi eftirfylgni samþykktar bæjarstjórnar frá ársbyrjun 2001 um minjagarðinn við Hofsstaði. $line$Fyrir fundinum lá minnisblað unnið af upplýsinga- og menningarfulltrúa ásamt formanni þar sem farið er yfir stöðu minjagarðsins og hvernig hægt er að tengja hann enn frekar við miðbæjarsvæði Garðabæjar, í anda framkominnar tillögu. $line$Lagt fram og tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar 13. maí nk. $line$