Beint í efni

Söguganga bókasafnsins vor 2015

Málsnúmer 1503160

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Sögugöngur Bókasafns Garðabæjar að vori hafa tekist vel undanfarin ár en sögugöngur safnsins voru fyrst haldnar í samstarfi við menningar- og safnanefnd vorið 2012. $line$Fyrri gangan af tveimur í ár var haldin í samstarfi við Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness. Farið var í fuglaskoðunarferð frá bókasafninu á Álftanesi laugardaginn 2. maí sl. undir leiðsögn Einars Ó. Þorleifssonar sem um árabil var formaður Fuglaverndunarfélags Íslands. Eftir gönguna var boðið upp á hressingu í bókasafninu. $line$Næsta ganga, sögu- og minjaganga á Garðaholti, verður farin laugardaginn 9. maí nk. Þá verður gengið um Garðaholt og Garðahverfi og burstabærinn Krókur heimsóttur. Leiðsögumaður verður Rúna K. Tetzschner, íslenskufræðingur og myndlistarmaður.$line$

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Bókasafn Garðabæjar hefur undanfarin ár, í samstarfi við menningar- og safnanefnd, boðið íbúum bæjarins upp á sögugöngu að vori. Fyrirhugað er að vera með næstu sögugöngu á vegum bókasafnsins laugardaginn 9. maí nk. Gengið verður um Garðaholt og sagt frá merkum minjum á því svæði auk þess sem komið verður við í bænum Króki.$line$Menningar- og safnanefnd fagnar þessu framtaki bókasafns bæjarins sem stuðlar að því að efla vitund og þekkingu almennings á sögufrægum stöðum í Garðabæ.$line$