Beint í efni

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2015

Málsnúmer 1503131

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

9. fundur

Farið var yfir drög að dagskrá menningaruppskeruhátíðar. Upplýsinga- og menningarfulltrúa falið að vinna dagskrána áfram.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2015 verður haldin fimmtudaginn 28. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Farið var yfir hvernig dagskrá hefur verið síðustu ár og rætt um dagskrá í ár.$line$Markmið með uppskeruhátíð menningar og lista í Garðabæ er að vekja athygli á því mikla og góða framlagi sem listamenn í bæjarfélaginu, ungir sem aldnir, hafa fram að færa til menningar- og listalífs bæjarins. Jafnframt verða þar afhentar opinberar viðurkenningar Garðabæjar fyrir merkt framlag til menningar- og lista svo og hvatningarstyrkir bæjarins til ungra listamanna.$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúa mun annast undirbúning hátíðarinnar í ár sbr. ályktun frá fundi menningar- og safnanefndar þann 13. mars 2015$line$

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Stefnt er að því að halda uppskeruhátíð menningar og lista í Garðabæ 2015 í samkomuhúsinu á Garðaholti fimmtudaginn 28. maí nk. Dagskrá verður með svipuðu sniði og undanfarin ár þar sem m.a. er tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar 2015 og kynnt er úthlutun úr hvatningarsjóði ungra listamanna 2015. Rætt var um með hvaða hætti hægt er að gera listamenn í Garðabæ og starf þeirra sýnilegra. $line$Samþykkt að fela menningar- og upplýsingafulltrúa að annast undirbúning dagskrár uppskeruhátíðar menningar og lista 2015 í samræmi við umræður á fundinum.$line$