Jazzhátíð Garðabæjar 2015
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Jazzhátíð Garðabæjar var haldin í tíunda sinn dagana 23.-26. apríl sl. Fjölbreytt dagskrá var í boði og að þessu sinni var bryddað upp á þeirri nýjung að hafa sérstaka fræðsludagskrá nokkrum dögum fyrir tónleikahaldið. Góð aðsókn var á alla tónleikana. $line$Farið var yfir hvernig tókst til og færir menningar- og safnanefnd Sigurði Flosasyni, listrænum stjórnanda Jazzhátíðar Garðabæjar 2015, þakkir fyrir afar vel heppnaða hátíð í ár sem endranær.$line$
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Sigurður Flosason, tónlistarmaður og listrænn stjórnandi jazzhátíðar Garðabæjar 2015, mætti á fundinn og fór yfir drög að dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin í tíunda sinn í apríl nk., nánar tiltekið dagana 23.-26. apríl 2015. Rætt var um hvernig framkvæmd jazzhátíðar hefur verið undanfarin ár og hvernig til hefur tekist. $line$Samþykkt að unnið verði áfram eftir þeim drögum sem kynnt voru.$line$
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Formaður sagði frá nýlegum fundi sínum og upplýsinga- og menningarfulltrúa með Sigurði Flosasyni, tónlistarmanni og listrænum stjórnanda Jazzhátíðar Garðabæjar frá upphafi. Jazzhátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2006 að vori til, oftast með upphaf á Sumardaginn fyrsta. $line$Farið var yfir hvernig dagskráin hefur verið undanfarin ár.$line$Að mati nefnarmanna hefur vel tekist til með Jazzhátíð hingað til og samþykkir nefndin að stefnt skuli að því að halda Jazzhátíð Garðabæjar í tíunda sinn í lok apríl 2015. Samþykkt var að fela Sigurði Flosasyni að vera listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Garðabæjar 2015 og útfæra dagskrá hátíðarinnar, eins og áður. Rætt um að skoða hvernig væri hægt að útfæra samstarfssamning um Jazzhátíð til lengri tíma. $line$