Beint í efni

Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við hádegistónleikaraðar í Garðabæ sumarið 2015.

Málsnúmer 1505037

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

19. (1687). fundur

Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Aroni Erni Óskarssyni, tónlistarmanni styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna hádegistónleikaraðar í Garðabæ sumarið 2015.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Tekin var fyrir umsókn frá Aroni Erni Óskarssyni tónlistarmanni, dagsett 5. maí 2015, um fjárstyrk vegna hádegistónleikaraðar í Garðabæ sumarið 2015. Um væri að ræða um klukkustundarlanga tónleika tveggja tónlistarmanna hverju sinni, Hádegisdúettar. Umsókninni fylgdi greinargerð og kostnaðaráætlun.$line$Menningar- og safnanefnd tekur undir með umsækjanda að tónleikaröð af þessu tagi gæti verið lyftistöng fyrir menningarlíf Garðabæjar og samþykkir að veita fjárstyrk að upphæð kr. 200.000 til verkefnisins í sumar. Skilyrði fyrir styrkveitingunni er að verkefnið verði unnið áfram í samráði við upplýsinga- og menningarfulltrúa Garðabæjar og að áður en til útgreiðslu styrkjarins kemur skal verkefnið hafa hlotið samþykki upplýsinga- og menningarfulltrúa. Mælst er til þess að viðburðirnir verði auglýstir opnir öllum íbúum Garðabæjar og að einhver viðburðanna verði sérstaklega tileinkaður eldri íbúum bæjarins og þá haldinn í Jónshúsi.$line$