Beint í efni

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2015

Málsnúmer 1501344

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram. Fyrirliggjandi umsóknir, sem sendar voru nefndarmönnum með fundarboði, voru lagðar fram og ræddar. $line$Samþykkt að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2015 sem munu jafnframt fá afhent viðurkenningarskjal þar um á uppskeruhátíð menningar og lista þann 28. maí nk.: $line$$line$Silja Hinriksdóttir, kt. 171189-3149, styrk að upphæð 100 000 kr, fyrir hönnarvinnu.$line$Gospelkór Jóns Vídalín, kt. 570169-5649, styrk að upphæð 150 000 kr, fyrir tónleikahald.$line$Kolbeinn Þórsson, kt. 180398-3099, styrk að upphæð 100 000 kr, fyrir tónleikahald í Garðabæ með hljómsveitinni Lucy Blue. $line$Inga Huld Hákonardóttir, kt. 151290-2649, styrk að upphæð 100 000 kr, fyrir kynningarsýningu á dansverki. $line$$line$Samningar verða gerðir við alla styrkþega þar sem kveðið er á um skilyrði vegna úthlutunar úr hvatningarsjóðnum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn í apríl sl. og var umsóknarfrestur til 4. maí 2015. Fyrirliggjandi umsóknir, sem sendar voru nefndarmönnum með fundarboði, voru lagðar fram og ræddar. $line$Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi menningar- og safnanefndar 13. maí nk. $line$

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Farið yfir fyrirliggjandi reglur og auglýsingu.

Samkvæmt reglum um Hvatningarsjóð ungra listamanna í Garðabæ skal í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins hverju sinni veita styrki til ungra listamanna í Garðabæ til að efla þá og hvetja til frekari listsköpunar. Menningar- og safnanefnd skal auglýsa eftir umsóknum um styrkina á vorönn. Nefndin ákveður síðan fjölda styrkja og upphæðir miðað við fyrirliggjandi umsóknir hverju sinni.$line$$line$Farið var yfir fyrirkomulag úthlutunar styrkja úr hvatningarsjóðnum. Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum um styrki úr hvatningarsjóðnum í mars næstkomandi.$line$$line$$line$$line$Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir vék af fundi.$line$$line$