Beint í efni

100 ára afmæli kosningaréttar kvenna

Málsnúmer 1409212

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Greint frá hugmyndum mannréttinda- og forvarnarnefndar í tengslum við 100 ár afmæli kosningaréttar kvenna.

Mannréttinda- og forvarnarnefnd Garðabæjar er að skoða ýmsar hugmyndir í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, m.a. hvort og þá hvaða viðburði sé unnt að tengja við Kvennahlaup Stjörnunnar 2015 sem fer fram 13. júní nk.$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi skýrði frá því að hjá Bókasafni Garðabæjar sé jafnframt verið að skoða ýmsar hugmyndir sem væri hægt að útfæra á safninu í tengslum við 100 ára afmælið, t.d. nálægt dagsetningu kvennahlaupsins og einnig þann 19. júní 2015.$line$

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

4. fundur

Á árinu 2015 verður þess minnst að 100 ár eru frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. $line$Lagt var fram erindi afmælisnefndar um 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna sem tekið var fyrir í bæjarráði Garðabæjar í september 2014 og vísað til mannréttinda- og forvarnanefndar bæjarins sem vill athuga um samstarf við aðrar nefndir um málið, þ.m.t. menningar- og safnanefnd.$line$Greint var frá bréfi Kvenfélags Álftaness, dags. 05.01.2015, varðandi ráðstefnu sem félagið hyggst halda í heimabyggð í mars næstkomandi í tilefni af 100 ára kosningarétti kvenna undir yfirskriftinni,,Kosningaréttur kvenna í 100 ár - staða kvenna þá og nú". $line$Umræður voru um málið og samþykkti nefnin að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að kanna hvort og þá með hvaða hætti söfn og fyrirtæki bæjarins geti komið að viðburðahaldi tengdu afmælinu. $line$

Bæjarráð Garðabæjar

03

35. fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til mannréttinda- og forvarnanefndar.