35. fundur
35. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.09.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir,
Dagskrá
01
Bréf Hönnunarsafn Íslands varðandi merkingar og leiðarvísa að safninu, 11.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
02
Bréf framkvæmdastjóra 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna varðandi viðburði í tilefni afmælisins, dags. 11.08.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til mannréttinda- og forvarnanefndar.
03
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi fasteignagjöld fyrir árið 2014, dags. 10.09.14.
Bæjarráð samþykkir að veita UMF-Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.434.500 til greiðslu fasteignagjalda árið 2014.
04
Bréf umhverfisnefndar varðandi fjárveitingar til umhverfismála á árinu 2015, dags. 10.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
05
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi landsfund jafnréttisnefnda sveitarfélaga, dags. 09.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í mannréttinda- og forvarnanefnd og í fjölskylduráði.
06
Bréf Guðfinnu Björnsdóttur og fleiri íbúa við Löngufit varðandi hljóðmengun frá Hafnarfjarðarvegi, dags. 04.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs.
07
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 14-18
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar 24 íbúða fjölbýlishúss við Holtsveg 14-18.
08
Umsókn um byggingarleyfi - Hraunprýði 5
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss við Hraunprýði 5.
09
Umsókn um byggingarleyfi - Hraunprýði 7
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss við Hraunprýði 7.
10
Umsókn um byggingarleyfi - Hraunprýði 9
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss við Hraunprýði 9.
11
Umsókn um byggingarleyfi - Furuás 7
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Furuás 7.
12
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni "Ungt fólk 2013", dags. 09.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til mannréttinda-og forvarnanefndar, ungmennaráðs, íþrótta- og tómstundaráðs, skólanefndar grunnskóla og fjölskylduráðs.
13
Bréf Sigríðar R. Júlíusdóttur hrl. varðandi Þórukot á Álftanesi, dags. 08.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.
14
Tillaga Bjartrar framtíðar um verklag vegna atvinnu- og tækniþróunarmála, dags. 12.09.14.
Bæjarráð vísar tillögunni til nánari útfærslu hjá bæjarstjóra.