6 (1674). fundur
6 (1674). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.02.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - heimild til lántöku.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og fór yfir heimildir til lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra um lántöku að fjárhæð allt að kr. 300.000.000 með stækkun á áður útgefnum flokki til lántöku.$line$$line$Tilboð vegna lánveitinga verða lögð fram til afgreiðslu í bæjarráði.
02
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi aðstöðu fyrir fjölmiðla, dags. 03.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
03
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi aðstöðu í skólum, dags. 03.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs.
04
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi rekkverk á Stjörnuvelli, dags. 03.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
05
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi mörk á knattspyrnusvæði í Ásgarði, dags. 03.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
06
Bréf Sjálfsbjargar varðandi ferðaþjónustu fyrir fatlað folk, dags. 30.01.15.
Lagt fram bréf Sjálfsbjargar sem sent er sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er fram á viðræður við sveitarstjórnarmenn um ferðaþjónustu fatlaðs fólk.$line$$line$Bæjarráð vísar til þess að sveitarfélögin hafa skipað sérstaka stjórn með aðild Sjálfsbjargar til að yfirtaka stjórn á ferðaþjónustu fatlaðs fólks á vegum Strætó.
07
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn) 237. mál, dags. 05.02.15.
Lagt fram.
10
Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi styrk, dags.04.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
11
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni "Ungt fólk 2014" , dags. 26.01.15.
Lagt fram.
12
Tillaga um útboð vegna innkaupa á vöru og þjónustu
Bæjarráð samþykkir tillögu um að við innkaup hjá Garðabæ verði í ávallt gætt þeirra reglna sem settar hafa verið með samþykkt innkaupareglna bæjarins.
13
Tillaga um skipun starfshóps til að fylgja eftir tillögu frá 2001 um byggingu minjaskála.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.