Beint í efni

Krókamýri 62 og 64, tillaga að breytingum. Fyrirspurn

Málsnúmer 1506304

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingum á parhúsinu að Krókamýri 62-64 lokinni grenndarkynningu samræmi við 44.gr. Skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

30. (1698). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við parhúsið Krókamýri 70-72, þar sem staðfest deiliskipulag liggur ekki fyrir.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að parhúsinu Krókamýri 62 og 64 hvort leyft verði að byggja ofan á bílageymslur sem tengja húshlutana saman. Bent er á að í parhúsinu Krókamýri 70-72 var á sínum tíma heimilað að byggja ofan á bílageymslur. Þar sem að ekki er deiliskipulag í gildi á svæðinu heimilar skipulagsnefnd að byggingarleyfisumsókn sem er í samræmi við framlögð gögn verði vísað til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.